Innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið. Innlent 5.10.2026 21:01
Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. Innlent 5.10.2026 19:46
Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Jarðskjálfti 4,7 að stærð reið yfir í Bárðarbunguöskju klukkan 17:28 síðdegis í dag. Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni en engin merki eru um gosóróa. Innlent 5.10.2026 18:22
Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess. Innlent 5.10.2026 18:13
Rubio lentur á Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Keflavík. Hann segist mættur hingað til að ræða sameinleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf. Innlent 5.10.2026 17:54
Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífisins hafna öllum ásökunum um svik. Þau hafi staðið að fullu við gerða samninga og kalla forsvarsmennirnir eftir því að umræðan um kjaramálin byggi á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu. Innlent 5.10.2026 17:33
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. Innlent 5.10.2026 17:12
Opnuðu Arnarnesveg að hluta Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. Innlent 5.10.2026 15:52
Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur líklegt að flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli hafi misst yfirsýn yfir flugvélar og þyrlur sem voru á leið til og frá vellinum þann 2. ágúst 2024 sem varð til þess að tvöföld árekstarhætta skapaðist með stuttu millibili. Innlent 5.10.2026 15:46
Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum. Innlent 5.10.2026 15:26
Segir Aþenu í andarslitrunum Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari segir samskiptin við Reykjavíkurborg og þá sérstaklega Bjarna Guðjónsson, sem nú fer fyrir Íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, ömurleg. Borgin hafi sagt upp samningi við Aþenu og félagið sé því í andarslitrunum. Innlent 5.10.2026 15:15
Rubio spenntur að hitta Þorgerði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist spenntur fyrir Íslandsheimsókn sinni. Ísland sé góður vinur Bandaríkjanna og einn af stofnmeðlimum Nato. Innlent 5.10.2026 15:13
Skakkur á stolnum strætó Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela strætisvagni og aka honum undir áhrifum kannabiss í mars síðastliðnum. Innlent 5.10.2026 14:44
Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Um fjörutíu manns veiktust í hópsmiti sem kom upp í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni í síðustu viku. Nóróveira hefur greinst í tveimur sýnum en ekki hefur tekist að tengja smitið við tiltekin matvæli. Innlent 5.10.2026 14:39
Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Trúnaðarbresturinn sem Samfylkingin og óháðir töldu svo alvarlegan að slíta þyrfti meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í Suðurnesjabæ snýr samkvæmt heimildum fréttastofu að tilraun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum og Miðflokki. Tilraunin var þó ekki gerð af oddvita flokksins heldur þeim sem situr í öðru sæti. Innlent 5.10.2026 13:47
Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Reykjavíkurborg hefur greitt um 19,8 milljónir króna fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða frá því byggðin fluttist þangað. Innlent 5.10.2026 13:39
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. Innlent 5.10.2026 13:34
Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Lögreglan ákveður síðar í dag hvort hún krefst gæsluvarðhalds yfir manninum sem var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Hann er sá eini sem er nú í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti. Innlent 5.10.2026 13:05
Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Tæplega 350 kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu á fyrstu sex mánuðum ársins. Þau hafa ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2021. Innlent 5.10.2026 12:43
Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Íslensku menntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk séstakra hvatningarverðlauna. Innlent 5.10.2026 12:38
Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins. Innlent 5.10.2026 12:01
Ögurstund í kjarasamningamálum Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. Innlent 5.10.2026 11:52
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Blaðafeðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson hafa ritað bók um Davíð Oddsson. Bókin er komin í prentsmiðju en hún var skrifuð á síðasta hálfa ári. Hætt er við að það fari um margan aðdáanda Davíðs við þessar fréttir. Innlent 5.10.2026 11:47
Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi. Innlent 5.10.2026 11:12
Vill breyta umdeildum gatnamótum Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. Innlent 5.10.2026 10:38
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar segir íslensk stjórnvöld vilja innleiða bókun 35 til að tryggja að íslenskir borgarar og fyrirtæki fái fullan rétt sem EES-samningurinn færir þeim. Sigríður Á. Andersen, þingkona Miðflokksins, telur að íslenska ríkið eigi að láta reyna á dómsmál fyrir EFTA-dómstólnum um innleiðingu EES-löggjafar á Íslandi áður en þingið tekur bókun 35 til umræðu. Komist dómstóllinn að því að íslenska ríkið hafi brotið á EES-samningnum sé komin upp önnur staða og þá þurfi að ræða það sérstaklega. Innlent 5.10.2026 10:26
Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Í yfirlýsingu Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ sem send var út í gær segir að flokkurinn hafi slitið meirihlutasamstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn vegna trúnaðarbrests sem ekki hafi verið hægt að líta framhjá. Innlent 5.10.2026 08:03
Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir nauðsynlegt að verklag í skilnaðarmálum sé endurskoðað og þá sérstaklega í sáttameðferð hjá sýslumanni. Þegar þolendur greini frá ofbeldi í lögskilnaðarferli eigi að setja málin í sérstakt ferli og alls ekki í sáttameðferð. Það þurfi að gera áhættumat á gerendum og afleiðingum þess að þeir fái að halda áfram umgengni, fyrir bæði þolendur og börn sem koma að málinu. Innlent 5.10.2026 06:46
Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá íbúa um að tveir menn hefðu stungið höfðinu inn um glugga dóttur íbúans. Lögreglan fór á vettvang. Innlent 5.10.2026 06:18
Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Lögreglan er sögð hafa handtekið athafnamann við komu til landsins í Leifsstöð í kvöld í tengslum við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem er til rannsóknar. Innlent 4.10.2026 23:03