Segir Aþenu í andarslitrunum Jakob Bjarnar skrifar 5. október 2026 15:15 Brynjar Karl vandar Bjarna Guðjónssyni ekki kveðjurnar í herskáu ávarpi á Facebook-síðu sinni. Hann segir nú stefna í að Aþena verði lögð niður, að öllu óbreyttu, en það verði þó ekki gert fyrr en eftir fund sem haldinn verður á morgun. vísir/ívar fannar/vilhelm Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari segir samskiptin við Reykjavíkurborg og þá sérstaklega Bjarna Guðjónsson, sem nú fer fyrir Íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, ömurleg. Borgin hafi sagt upp samningi við Aþenu og félagið sé því í andarslitrunum. „
Meirihlutinn, og reyndar Samfylkingin í borginni, voru að segja upp samningum við Aþenu. Þau ætla ekki að gefa okkur leyfi til að reisa kennslustofu eða félagsaðstöðu fyrir börnin. Á okkar kostnað eins og allt sem við höfum gert.“ Brynjar Karl er þarna að tala um baráttu Aþenu, íþróttafélags í Breiðholti sem lagt hefur áherslu á körfuknattleik stúlkna og kvenna. En árangur Aþenu hefur verið þannig að eftir er tekið. Brynjar virðist hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum með nýjan meirihluta. Hann segir samskiptin við Bjarna Guðjónsson hafa verið ömurleg. „Hann, eins og embættismennirnir, hefur engan áhuga á að tala við fólkið sem hefur verið að ná árangri í hverfinu. Það virðist vera að saga hverfisins og börnin sem hérna búa skipti þetta lið engu máli. Ég bið frekar um Skúla Helgason aftur,“ segir Brynjar; hann hafi þó svarað sér stöku sinnum. Brynjar birtir harðorða yfirlýsingu á Facebook-vegg sínum þar sem hann segir nú stefna í að Aþena verði lögð niður en það verði þó ekki gert fyrr en hann hefur átt samtal við stelpurnar sem þar æfa, foreldra og velunnara félagsins. „Þess vegna erum við að boða til fundar í Austurbergi þriðjudaginn 6. október klukkan tuttugu. Í baráttu við óréttmæt yfirvöld.“ Brynjar hefur áður átt í átökum við borgaryfirvöld en hann segir ástæðuna fyrir því nú að þeim sé bolað út sé að þau í Aþenu séu víst „embættismenn borgarinnar vegna þess að við höfum verið að gagnrýna áhugaleysi þeirra, vanhæfni og áhugaleysi í hverfi sem er þekkt fyrir lélegan árangur. Svo birtum við líka rökstuddar greinar um hvernig farið er með fjármál borgarinnar.“ Brynjar skorar á Bjarna að mæta sér hvar og hvenær sem er til að ræða þessi mál en hann á ekki von á því að af því verði. Af fenginni reynslu.
Aþena Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Íþróttir barna Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira