Fundur VR og SA hafinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. október 2026 09:45 Allir mættir á fundinn. Vísir/Anton Brink Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir.
Fundurinn átti að hefjast klukkan 9:15 og voru fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mættir rétt rúmlega það. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, tók kaffibolla með sér inn á fundinn.Vísir/Anton Brink Fylkingarnar áttu einnig fund í gærmorgun og sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í samtali við Vísi í morgun að þar hefði VR lagt fram tillögur að lausnum í kjaradeilunni. Þá hafði hún vonast eftir öðrum fundi eftir hádegi til að halda áfram að vinna úr lausnunum og biðu fulltrúarnir frá því klukkan eitt þar til seint síðdegis. Fulltrúar SA létu hins vegar ekki sjá sig. Seint í gærkvöldi undirrituðu Starfsgreinasamband Íslands, Efling og Samiðn samkomulag um að framlengja kjarasamningana út næsta ár. „Ég held að allir átti sig á mikilvægi þess að það er ávinningur allra að kjarasamningar haldi lífi í stað átaka, sem kæmu upp á sama tíma og atvinnuleysi eykst og það þrengir að sökum hækkandi verðbólgu og vaxtastigs,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í samtali við Vísi. Forsendur Stöðugleikasamninganna svokölluðu brustu í ágúst þegar verðbólgan mældist 5,6 prósent. Með því máttu allir sem koma að kjarasamningunum slíta honum en fresturinn rennur út klukkan fjögur síðdegis á morgun. VR fékk heimild frá trúnaðarmönnum og samninganefndum fyrr í vikunni til að segja upp kjarasamningum.
Kjaramál Verðlag Stéttarfélög Vinnumarkaður Atvinnurekendur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Sjá meira