Stéttarfélög
1 2 3 4 5 6 … 38 ›
Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa. Innlent 7.10.2026 14:20
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 12:09
Fundur VR og SA hafinn Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir. Innlent 7.10.2026 09:45
Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:41
Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst. Innlent 7.10.2026 08:08
Framlengja samninga út næsta ár Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld. Innlent 6.10.2026 23:04
Bíði og bíði eftir Bjarna Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13. Innlent 6.10.2026 16:32
Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. Innlent 6.10.2026 12:11
Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. Innlent 5.10.2026 21:30
Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. Innlent 5.10.2026 19:46
Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess. Innlent 5.10.2026 18:13
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. Innlent 5.10.2026 13:34
Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:26
Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. Innlent 2.10.2026 16:29
Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því. Innlent 30.9.2026 15:36
Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, ætlar að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambandsins á þingi þess í næsta mánuði. Hann segist leggja áherslu á samstöðu innan sambandsins. Innlent 29.9.2026 10:20
Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hafa hrakið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans. Ragnar og stuðningsmenn hans hafi gert allt til að sverta mannorð hennar og var það ekki hennar ákvörðun að segja skilið við VR eftir sigur Ragnars. Innlent 26.9.2026 14:27
Freyr látinn fara frá Eflingu Freyr Rögnvaldsson upplýsingafulltrúi Eflingar var látinn fjúka á stuttum fundi í morgun. Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar segir að uppsögn hans hafi ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera. Innlent 25.9.2026 12:38
Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Lágvöruverðsverslunin Prís mun ekki verða við ákalli verkalýðshreyfingarinnar um að halda aftur af verðhækkunum vegna verðbólgunnar sem nú geisar. Að sögn Prís er ástæðan einföld, fyrir Prís sé lágt verð ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna. Neytendur 25.9.2026 11:16
Flugvirkjar aflýsa verkfalli Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Vísi. Innlent 23.9.2026 11:13
Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Meirihluti félagsfólks Fagfélaganna telur að gera eigi kröfur um frekari kjarabætur vegna forsendubrests kjarasamninganna. Stjórn Samtaka atvinnulífsins vill að kjarasamningurinn haldi en hafnar viðbrögðum sem fela í sér frekari kostnaðarauka. Innlent 22.9.2026 16:06
Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma. Innlent 21.9.2026 14:28
Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Ökumenn eyðsluminni bíla greiða um 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann á næsta ári að teknu tilliti til kílómetragjalds miðað við útreikninga stéttarfélagsins Visku. Félagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við tvö og hálft prósent. Neytendur 16.9.2026 09:38
Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar VR, LÍV og Fagfélögin hafa sent verðmótandi fyrirtækjum bréf og óskað svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu. Sláturfélag Suðurlands hefur þegar brugðist við og frestað fyrirhuguðum verðhækkunum fram í janúar. Viðskipti innlent 14.9.2026 10:21
Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir svokallað þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar ganga vel og hafa þegar skilað mikilvægum upplýsingum, þvert á það sem verkalýðsforkólfar hafa sagt undanfarið. Innlent 11.9.2026 14:38
Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar. Innlent 10.9.2026 22:59
Blása á gagnrýni og opna dagatalið Forsætisráðuneytið blæs á gagnrýni formanns Starfsgreinasambandsins, sem segist ekkert kannast við þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar um brostnar forsendur kjarasamninga. Fundir stýrihóps séu þegar orðnir þrettán talsins, forsætisráðherra hafi setið nokkra fundi með ASÍ og SA og málið hafi verið það eina á dagskrá á tveimur fundum þjóðhagsráðs. Innlent 9.9.2026 14:18
„Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, kannast ekki við að hafa átt í virku samtali við stjórnvöld um forsendubrest kjarasamninga. Hann gefur lítið fyrir fjárlagafrumvarp næsta árs sem sé „sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“. Innlent 9.9.2026 10:11
Klórar sér í kollinum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond. Innlent 7.9.2026 15:35
Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Finnbjörn A. Hermannsson ætlar ekki að bjóða sig aftur fram sem forseta Alþýðusambands Íslands. Nú taki ný verkefni við eftir áratuga kjarabaráttu. Innlent 4.9.2026 14:27