Stéttarfélög

Fréttamynd

Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun

Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Fundur VR og SA hafinn

Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir.

Innlent
Fréttamynd

Uggandi yfir af­stöðu VR

Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sam­komu­lagið hafi ekki á­hrif á við­ræður VR

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst.

Innlent
Fréttamynd

Fram­lengja samninga út næsta ár

Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Bíði og bíði eftir Bjarna

Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13.

Innlent
Fréttamynd

Af­gerandi niður­staða um að slíta kjara­samningum

Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 

Innlent
Fréttamynd

Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum

Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út.

Innlent
Fréttamynd

SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp

Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif.

Innlent
Fréttamynd

Á­kveða í kvöld hvort kjara­samningum verði sagt upp

Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gera al­var­legar at­huga­semdir við mál­flutning Daða

VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því.

Innlent
Fréttamynd

Full­trúi prentara vill verða for­seti ASÍ

Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, ætlar að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambandsins á þingi þess í næsta mánuði. Hann segist leggja áherslu á samstöðu innan sambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“

Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hafa hrakið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans. Ragnar og stuðningsmenn hans hafi gert allt til að sverta mannorð hennar og var það ekki hennar ákvörðun að segja skilið við VR eftir sigur Ragnars.

Innlent
Fréttamynd

Freyr látinn fara frá Eflingu

Freyr Rögnvaldsson upplýsingafulltrúi Eflingar var látinn fjúka á stuttum fundi í morgun. Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar segir að uppsögn hans hafi ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera.

Innlent
Fréttamynd

Prís neitar að frysta verð en heldur verði á­fram lágu

Lágvöruverðsverslunin Prís mun ekki verða við ákalli verkalýðshreyfingarinnar um að halda aftur af verðhækkunum vegna verðbólgunnar sem nú geisar. Að sögn Prís er ástæðan einföld, fyrir Prís sé lágt verð ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna.

Neytendur
Fréttamynd

Flug­virkjar af­lýsa verk­falli

Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Vísi. 

Innlent
Fréttamynd

Muni grípa til nauð­syn­legra að­gerða vegna verk­fallsins

Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Bensín­lítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðslu­minni bíla

Ökumenn eyðsluminni bíla greiða um 452 krónur fyrir bensínlítrann og 486 krónur fyrir dísillítrann á næsta ári að teknu tilliti til kílómetragjalds miðað við útreikninga stéttarfélagsins Visku. Félagið krefst þess að hækkun krónutölugjalda og kílómetragjalds verði takmörkuð við tvö og hálft prósent. 

Neytendur
Fréttamynd

Fjár­laga­frum­varpið „köld kveðja til launa­fólks“

Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar.

Innlent
Fréttamynd

Blása á gagn­rýni og opna daga­talið

Forsætisráðuneytið blæs á gagnrýni formanns Starfsgreinasambandsins, sem segist ekkert kannast við þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar um brostnar forsendur kjarasamninga. Fundir stýrihóps séu þegar orðnir þrettán talsins, forsætisráðherra hafi setið nokkra fundi með ASÍ og SA og málið hafi verið það eina á dagskrá á tveimur fundum þjóðhagsráðs.

Innlent
Fréttamynd

„Sleggja beint í höfuðið á al­menningi og fyrir­tækjum“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, kannast ekki við að hafa átt í virku samtali við stjórnvöld um forsendubrest kjarasamninga. Hann gefur lítið fyrir fjárlagafrumvarp næsta árs sem sé „sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“.

Innlent
Fréttamynd

Klórar sér í kollinum

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond.

Innlent