Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Öflugir hópar og einstaklingar hlaupa til styrktar Ljósinu í Reykjavíkurmaraþoni á morgun. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Lífið samstarf 21.8.2026 16:17
Etur kappi við Obama og Reynolds Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds. Bíó og sjónvarp 21.8.2026 15:03
Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina. Lífið 21.8.2026 14:53
Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Guðmundur Felix Grétarsson birti fyrstu myndina af sér eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð í Frakklandi. Hann greindist nýverið með krabbamein í nefi. Lífið 20.8.2026 16:30
Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Rapparinn Swae Lee hélt tónleika í Austurbæjarbíói um helgina og skemmti sér svo á næturklúbbnum Auto. Farangur hans týndist hins vegar á leið til landsins og því góð ráð dýr. Eftir að hafa leitað sér að nærbuxum í götufatabúðinni Coppermine heillaðist hann af merkinu, verslaði stóran hluta af lagernum og var klæddur í merkið frá toppi til táar á tónleikunum. Lífið 20.8.2026 15:32
Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Nýjasta stikla Grand Theft Auto 6 verður ekki fyrst sýnd á YouTube eða samfélagsmiðlum Take-Two og Rockstar, fyrirtækjanna á bakvið leikinn. Þess í stað verður hún sýnd fyrst á Netflix en forsvarsmenn streymisveitunnar hafa líklega greitt fúlgur fjár fyrir sex klukkustunda einkarétt á stiklunni. Myndböndum úr leiknum var lekið á netið í gær. Leikjavísir 20.8.2026 09:01
Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Harry Bretaprins og Meghan, hertogahjónin af Sussex, hyggjast flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 2020. Lífið 19.8.2026 22:34
„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ „Mig langaði ekkert til að vera skvísa fyrr en töluvert seinna. Ég rakaði líka af mér allt hár þegar ég var tólf ára bara af því ég gat það,“ segir hin 21 árs gamla Aðalfríður Mekkín Samúels, sem er oftast kölluð Mekkín. Hún er mikill tískuunnandi, er óhrædd við að skera sig úr og hefur sannarlega gaman að því að klæða sig upp en hún ræddi við blaðamann um stílinn sinn og fataskáp. Tíska og hönnun 19.8.2026 20:02
Þorsteinn Leó orðinn pabbi Stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson og kærasta hans, Andrea Dís Skúladóttir, eru orðnir foreldrar eftir að frumburður þeirra kom í heiminn um helgina. Lífið 19.8.2026 15:59
Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. Lífið 19.8.2026 14:41
Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fór fram í annað sinn síðustu helgi á Hjalteyri. Sara Bjarnason skipuleggjandi hátíðarinnar segir hátíðina hafa heppnast gríðarlega vel. Tónlist 19.8.2026 14:16
Kanye treður upp í Rússlandi Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram. Tónlist 19.8.2026 13:40
Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Keppni um ljótasta hund heims fór fram í fimmtugasta skipti í ár en pug-hundurinn Jimmy Lu, sem er sex ára gömul, hreppti hnossið í ár. Hún hafnaði í öðru sæti í fyrra en þetta var í fjórða skipti sem hún var meðal keppenda. Skipuleggjendur hafa sagt raunverulegan tilgang keppninnar vera að hvetja fólk til að ættleiða gæludýr frekar en að kaupa. Lífið 19.8.2026 12:36
Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Fyrir tæpum þrjátíu árum tók Grensáskirkja nýtt orgel í notkun og hefur gamla orgelið síðan þá nýst í kennslu. Söfnuður kirkjunnar ákvað svo í vetur að færa Hallgrímskirkju í Saurbæ gamla orgelið. Um páskana var orgelið tekið í notkun í Saurbæ og síðasta sunnudag var haldin sameiginleg mess safnaðanna þar sem gjöfinni var formlega fylgt úr hlaði. Menning 19.8.2026 12:01
„Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Auður Helgadóttir Möller greindist með ristilkrabbamein í fyrra, aðeins 47 ára gömul. Hún taldi sig lausa við meinið eftir aðgerð en þá kom annað æxli í ljós. Til að losna við það þurfti að taka stóran part af ristlinum og allan endaþarminn og er Auður því með varanlegt stóma. Hún lætur þó ekki deigan síga, talar opinskátt um ferilið og Stómu litlu, eins og hún kallar stómað sitt. Lífið 19.8.2026 10:31
Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Jóhann Kristófer Stefánsson, tónlistarmaður og leikskáld, og Nadía Áróra Jonkers, fyrirsæta og starfsmaður Spútnik, eru sjóðheitt nýtt par. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur parið verið að slá sér upp síðustu mánuði. Lífið 19.8.2026 09:26
Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks heldur tónleika á Íslandi 7. október næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í Iðnó og aðeins verða 300 miðar í boði. Tónlist 19.8.2026 09:04
Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Ástralska leikkonan Nicole Kidman birti í nótt myndir úr heimsókn sinni til Íslands. Hún sótti landið heim í síðustu viku og var í hópi þeirra sem upplifðu almyrkvann hér á landi síðastliðinn miðvikudag, 12. ágúst. Lífið 19.8.2026 07:17
Sögðu já þar sem ástarsagan hófst „Athöfnin sjálf var rosa amerísk, sem okkur fannst ótrúlega skemmtilegt,“ segir Arna María Ólafsdóttir sem giftist ástinni sinni Pablo Garcia í Bandaríkjunum á dögunum með pompi og prakt. Hún ræddi við blaðamann um stóra daginn, undirbúning og ástina. Lífið 19.8.2026 07:00
Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar. Lífið 18.8.2026 20:14
„Ég vildi verða þrítug í Pucci“ „Ég hef lengi vel verið hrædd við þessi tímamót en get sagt það að það er gjörsamlega engin munur. Þannig ég er bara spennt, það eru skemmtilegir tímar framundan,“ segir hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu með stæl á dögunum. Blaðamaður ræddi við hana um tímamótin og teitið. Lífið 18.8.2026 20:02
Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir og fyrrum íshokkí-leikmaðurinn Brooks Laich eru orðin hjón. Tímaritið People Magazine fjallar ítarlega um brúðkaupið á miðlum sínum og voru með ljósmyndara á svæðinu. Lífið 18.8.2026 16:24
Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Atli Geir Grétarsson leikmyndahönnuður er langefstur á lista yfir tekjuhæstu listamenn landsins. Næst á eftir honum koma söngkonan Sigga Beinteinsdóttir og leikarinn Örn Árnason. Ofarlega á blaði eru einnig leikarinn Ólafur Darri, leikstjórinn Baltasar Kormákur, Jökull í Kaleo og skemmtikrafturinn Steindi jr. Lífið 18.8.2026 15:59
Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, er gestagrillari í nýjasta þættinum af Grillað með Sjöfn. Hann er þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í eldhúsinu og bragðsterkur matur verður oft fyrir valinu. Eldpiparinn spilar þar stórt hlutverk og kitlar bragðlaukana. Lífið samstarf 18.8.2026 14:34