Leikkonan Bunny Levine er látin Leikkonan og bókasafnsvörðurinn Bunny Levine er látin, 97 ára að aldri. Hún lést í svefni á heimili sínu í Tarzana í Kaliforníuríki á fimmtudaginn. Lífið 23.8.2026 11:33
Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ „Engin orð. Bara sorg,“ skrifar Séra Davíð Þór Jónsson um fregnir af andláti Radíusbróður síns, Steins Ármanns Magnússonar. Hann hefur ekki fleiri orð um dánarfregnina í stuttri færslu á Facebook að sinni, en fjöldi fólks vottar honum samúð sína í athugasemdakerfinu. Lífið 23.8.2026 10:16
Steinn Ármann er látinn Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári. Lífið 23.8.2026 08:02
Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Foreldrar Magnúsar Mána opna sig um langa endurhæfingu hans eftir að hann skyndilega missti máttinn frá bringunni og niður. Endurhæfingin hefur falið í sér allt frá tíbetskum söngskálum í spænska hátæknimeðferð. Tugir hlaupa honum til stuðnings í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun. Lífið 21.8.2026 20:00
Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina. Lífið 21.8.2026 14:53
Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar verða haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars munu stíga á svið. Lífið 21.8.2026 14:17
Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Reykjavíkurmaraþonið er eftir innan við sólarhring og hafa þegar safnast rúmar 200 milljónir króna til góðgerðarfélaga. Fjöldi hlaupara hefur safnað miklum fjárhæðum til styrktar hinum ýmsu góðgerðarfélögum og samtökum. Lífið 21.8.2026 13:25
Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lögmaður Brian Hickerson, kærasta bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna andláts Panettiere. Þetta er í fyrsta sinn Hickerson eða lögmaður hans tjá sig opinberlega eftir að Panettiere fannst látin síðastliðinn sunnudag. Lífið 21.8.2026 07:50
Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Leikkonan Hayden Panettiere lést á sunnudaginn, aðeins 36 ára gömul, en hún er ein af mörgum barnastjörnum sem sködduðust við að alast upp í Hollywood og báru þess aldrei bætur. Börn sem frá unga aldri eru berskjölduð fyrir gráðugum og stjórnsömum foreldrum, bransafólki sem misnotar stöðu sína, stöðugu áreiti fjölmiðla og auðveldu aðgengi að vímuefnum. Lífið 21.8.2026 07:02
Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Köngulóarmaðurinn, eða Spider-Man, er ein þekktasta ofurhetja Marvel-heimsins. Hann getur klifrað veggi og er einstaklega sterkur og lipur og notar köngulóavefi til að sveifla sér milli bygginga. Lífið 20.8.2026 20:00
Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Þegar flugfreyjan Sigríður Birna Jónsdóttir áttaði sig á því að buxurnar hennar hefðu verið teknar í misgripum í útiklefa Vesturbæjarlaugar dó hún ekki ráðalaus. Hún vafði hálfkláraðri peysu sem hún hafði meðferðis um sig miðja og arkaði því næst ásamt syni sínum og tveimur frændum yfir í Ísbúð Vesturbæjar. Þar tók við henni hópur túrista sem brá heldur betur í brún við að sjá konu koma sér fyrir aftast í röðinni, á brókinni. Lífið 20.8.2026 16:56
Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Guðmundur Felix Grétarsson birti fyrstu myndina af sér eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð í Frakklandi. Hann greindist nýverið með krabbamein í nefi. Lífið 20.8.2026 16:30
Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Rapparinn Swae Lee hélt tónleika í Austurbæjarbíói um helgina og skemmti sér svo á næturklúbbnum Auto. Farangur hans týndist hins vegar á leið til landsins og því góð ráð dýr. Eftir að hafa leitað sér að nærbuxum í götufatabúðinni Coppermine heillaðist hann af merkinu, verslaði stóran hluta af lagernum og var klæddur í merkið frá toppi til táar á tónleikunum. Lífið 20.8.2026 15:32
Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Klínískur félagsráðgjafi segir mikinn mun á gagnsæjum samskiptum í parsambandi og gagnsæjum maka. Mikilvægt sé að vera hreinskilinn og opinn við maka sinn en það sé líka margt sem maður eigi ekki að deila með maka, til dæmis upplýsingar um fyrrverandi maka, særandi skoðanir annarra á makanum eða trúnaðarupplýsingar vina. Lífið 20.8.2026 10:54
Svona verður dagskráin á Menningarnótt Haldið verður hátíðlega upp á afmæli Reykjavíkurborgar á Menningarnótt laugardaginn næstkomandi, 22. ágúst. Gestir og gangandi geta sótt ríflega fjögur hundruð viðburði á borð við bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð. Lífið 20.8.2026 09:01
Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Harry Bretaprins og Meghan, hertogahjónin af Sussex, hyggjast flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 2020. Lífið 19.8.2026 22:34
Þorsteinn Leó orðinn pabbi Stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson og kærasta hans, Andrea Dís Skúladóttir, eru orðnir foreldrar eftir að frumburður þeirra kom í heiminn um helgina. Lífið 19.8.2026 15:59
Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. Lífið 19.8.2026 14:41
Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Keppni um ljótasta hund heims fór fram í fimmtugasta skipti í ár en pug-hundurinn Jimmy Lu, sem er sex ára gömul, hreppti hnossið í ár. Hún hafnaði í öðru sæti í fyrra en þetta var í fjórða skipti sem hún var meðal keppenda. Skipuleggjendur hafa sagt raunverulegan tilgang keppninnar vera að hvetja fólk til að ættleiða gæludýr frekar en að kaupa. Lífið 19.8.2026 12:36
„Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Auður Helgadóttir Möller greindist með ristilkrabbamein í fyrra, aðeins 47 ára gömul. Hún taldi sig lausa við meinið eftir aðgerð en þá kom annað æxli í ljós. Til að losna við það þurfti að taka stóran part af ristlinum og allan endaþarminn og er Auður því með varanlegt stóma. Hún lætur þó ekki deigan síga, talar opinskátt um ferilið og Stómu litlu, eins og hún kallar stómað sitt. Lífið 19.8.2026 10:31
Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Jóhann Kristófer Stefánsson, tónlistarmaður og leikskáld, og Nadía Áróra Jonkers, fyrirsæta og starfsmaður Spútnik, eru sjóðheitt nýtt par. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur parið verið að slá sér upp síðustu mánuði. Lífið 19.8.2026 09:26
Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Ástralska leikkonan Nicole Kidman birti í nótt myndir úr heimsókn sinni til Íslands. Hún sótti landið heim í síðustu viku og var í hópi þeirra sem upplifðu almyrkvann hér á landi síðastliðinn miðvikudag, 12. ágúst. Lífið 19.8.2026 07:17
Sögðu já þar sem ástarsagan hófst „Athöfnin sjálf var rosa amerísk, sem okkur fannst ótrúlega skemmtilegt,“ segir Arna María Ólafsdóttir sem giftist ástinni sinni Pablo Garcia í Bandaríkjunum á dögunum með pompi og prakt. Hún ræddi við blaðamann um stóra daginn, undirbúning og ástina. Lífið 19.8.2026 07:00
Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar. Lífið 18.8.2026 20:14