Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Bónus-deild kvenna á sviðið í kvöld á sportrásum Sýnar en þar eru tveir leikir á dagskrá og svo uppgjörsþátturinn Körfuboltakvöld. Körfubolti 7.10.2026 06:28
Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Grindavík tók á móti Haukum í 2. umferð Bónus deild kvenna í kvöld. Bæði lið hafa byrjað deildina sterkt og því var ljóst að hart yrði barist í HS Orku-höllinni í kvöld. Eftir frábæran lokasprett var það Grindavík sem hafði betur með tíu stigum 81-71. Körfubolti 6.10.2026 18:31
KR vann erkifjendurna sannfærandi Valur tók á móti KR í sannkölluðum Reykjavíkurslag í Bónus-deild kvenna í körfubolta. KR náði að vinna erkifjendurna á útivelli og endaði leikurinn 84-68. Körfubolti 6.10.2026 21:08
„Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þær eru búnar að missa rosalega mikið,“ segir Helena Sverrisdóttir um lið Vals sem í kvöld byrjar nýja leiktíð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Sérfræðingar Körfuboltakvölds óttast dimman vetur á Hlíðarenda. Körfubolti 30. september 2026 12:46
„Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var sáttur við sóknarleikinn en ósáttur við varnarleikinn þegar lið hans lagði Stjörnuna að velli í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 29. september 2026 22:29
„Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með vinnuframlag leikmanna sinna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Ólafur Jónas segir aftur á móti verk að vinna að fínpússa ákveðna hluti á báðum endum vallarins. Körfubolti 29. september 2026 22:26
Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. Körfubolti 29. september 2026 21:39
Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik KR-ingar báru sigurorð af Stjörnunni þegar liðin áttust við fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 94-87 KR í vil. Körfubolti 29. september 2026 21:08
Grænn Rúnar dró Grindavík Grindavík er spáð góðum árangri á komandi leiktíð í Bónus deild kvenna í körfubolta. Njarðvíkingum er spáð titlinum en Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson spáir Grindavík öðru sætinu. Körfubolti 29. september 2026 16:01
Meiri pressa á sterkara KR-liði KR var til umræðu í upphitunarþætti fyrir tímabilið í Bónus-deild kvenna í körfubolta í gærkvöld. Keppni hefst í deildinni í kvöld. Körfubolti 29. september 2026 12:30
Pressa á Arnari Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa. Sport 29. september 2026 12:07
„Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Íslandsmeistarar Njarðvík unnu góðan fimm stiga sigur 83-78 á Bikarmeisturum Keflavíkur þegar liðin mættust í meistarakeppni KKÍ í IceMar höllinni í kvöld. Brittany Dinkins leikmaður Njarðvíkur ræddi við Vísi eftir leik. Sport 25. september 2026 21:27
Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Mikil spenna er fyrir Bónus-deild kvenna í ár og hefst tímabilið formlega í kvöld. Þar mætast Íslandsmeistarar Njarðvíkur gegn bikarmeisturum Keflavíkur í keppni um hver er meistari meistaranna. Körfubolti 25. september 2026 12:58
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, hefur gefið út nýjar leikreglur sem taka gildi nú í haust. Körfubolti 3. september 2026 21:33
Berglind Katla fer í skóla í New York Berglind Katla Hlynsdóttir mun leika með Long Island Lutheran-menntaskólanum í New York á næsta tímabili en hún er uppalin í Stjörnunni. Körfubolti 3. september 2026 18:00
Grindavík mokar inn verðlaunum Sigurganga íþróttaheimildarþáttanna Grindavík á kvikmyndahátíðum heldur áfram. Körfubolti 27. ágúst 2026 16:33
„Takk fyrir mig körfubolti“ Körfuboltakonan Lovísa Björt Henningsdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hún greinir frá þessu í stöðufærslu á Instagram. Körfubolti 19. ágúst 2026 22:03
Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur samið við bandaríska bakvörðinn Diamond Battles um að leika með meistaraflokki félagsins á komandi keppnistímabili í Bónus deild kvenna. Körfubolti 5. ágúst 2026 20:39
Fjölnir þiggur sæti Aþenu Fjölniskonur munu spila í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð eftir að hafa þegið sætið sem að Aþena skildi eftir laust þegar félagið dró sig úr keppni. Körfubolti 15. júlí 2026 13:02
„Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfuboltafélagið Aþena mun ekki senda lið til keppni í Bónus deild kvenna á næsta tímabili. Stofnandi félagsins og þjálfari liðsins, Brynjar Karl Sigurðsson, segir ábyrgðina liggja hjá Reykjavíkurborg. Alvarlegast af öllu sé þó að sjá framtíð yngri flokka starfsins í uppnámi. Körfubolti 14. júlí 2026 08:31
Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi körfuboltafélagsins Aþenu, greinir frá því á samfélagsmiðlinum Facebook að meistaraflokkur liðsins hafi verið lagður niður og taki ekki þátt í Bónus deild kvenna í haust. Reykjavíkurborg, valdníðslu hennar og skorti aðgerða nýs meirihluta í borginni sé um að kenna. Körfubolti 12. júlí 2026 12:04
Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Sænska landsliðskonan Ellen Nyström hefur framlengt samning sinn við Grindavík og verður áfram lykilleikmaður liðsins í Bónusdeild kvenna í körfubolta á komandi tímabili. Körfubolti 10. júlí 2026 18:09
Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Haukar hafa styrkt liðið sitt fyrir komandi tímabil í kvennakörfunni og sömdu við leikmann sem reyndist Haukaliðinu afar erfið í Bónusdeildinni á síðustu leiktíð. Körfubolti 30. júní 2026 13:00
Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Fyrrverandi WNBA-leikmaðurinn Farhiya Abdi hefur ákveðið að halda kyrru fyrir á Íslandi og spila áfram með Grindavík á næstu leiktíð, í Bónus-deildinni í körfubolta. Körfubolti 24. júní 2026 15:59