Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Bónus-deild kvenna á sviðið í kvöld á sportrásum Sýnar en þar eru tveir leikir á dagskrá og svo uppgjörsþátturinn Körfuboltakvöld. Körfubolti 7.10.2026 06:28
Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu NBA-leikmaðurinn Victor Wembanyama hefur notað óhefðbundnar aðferðir til þess að bæta sig í körfubolta. Í sumar æfði hann með frönsku rúgbí-liði og var tekið á móti honum þar með opnum örmum. Körfubolti 6.10.2026 23:15
Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, tilkynnti á samfélagsmiðlinum Instagram að hann muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn 6.10.2026 22:59
Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Körfubolti 6.10.2026 18:31
„Náðum ekki að klukka þá framan af“ Aron Pálmarsson, þjálfari FH, segir að leikmenn sínir hafi fengið dýrmæta lexíu þegar franska liðið Limoges tók þá í kennslustund í fyrri hálfleik í leik liðanna í Evrópudeild EHF í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. Handbolti 6.10.2026 20:44
Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði markalaust jafntefli er liðið heimsótti Eistland í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinn í kvöld. Stigið tryggir að íslensku strákarnir tróna á toppi riðilsins fram í næsta landsleikjahlé. Fótbolti 6.10.2026 17:30
Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Margur hefur spilað betur í íslenska karlalandsliðinu en þeir gerðu í Tallinn í Eistlandi í kvöld. Leik liðanna lauk með markalausu jafntefli í tíðindalitlum leik. Fótbolti 6.10.2026 20:34
Náðu að vinna sterkt spænskt lið Íslendingaliðið Gummersbach náði að vinna nauman sigur á CB Ciudad í Evrópudeild karla í handbolta. Leikurinn var mjög jafn en á lokasprettinum náði Gummersbach að sækja sigurinn og endaði leikurinn 34-30. Handbolti 6.10.2026 20:30
Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Stjarnan tók á móti Ármanni í annarri umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Stjarnan byrjaði vel og náði að viðhalda forskotinu og sigldi heim sigri þar sem leikurinn endaði 80-62. Körfubolti 6.10.2026 20:17
FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik FH laut í lægra haldi fyrir franska liðinu Limoges þegar liðin áttust við í annarri umferð riðlakeppni Evrópudeildar EHF í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. Slæmur fyrri hálfleikur varð FH-liðinu að falli í þessum leik. Handbolti 6.10.2026 18:02
Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil U21 landslið Frakklands vann stórsigur á U21 landsliði Sviss í leik sem endaði 7-1. Með sigri Frakklands tryggir íslenska liðið sér í umspil til þess að komast á EM og endar liðið í öðru sæti riðilsins. Fótbolti 6.10.2026 19:01
Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals. Handbolti 6.10.2026 18:25
Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Króatía tók á móti Spáni í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar. Króatía komst óvænt yfir í byrjun en Mikel Merino náði að skora tvö mörk og tryggja sigur fyrir Spán. Fótbolti 6.10.2026 18:15
Kane með tvennu í öruggum sigri Englendingar fljúga hátt þessa dagana og unnu sannfærandi 3-0 sigur á Tékkum í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 18:15
Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Gylfi Þór Sigurðsson kemur aftur inn í byrjunarlið Íslands þrátt fyrir rifbeinsmeiðsli og er einn fimm sem koma inn í liðið frá 3-0 sigri á Búlgaríu á laugardaginn var. Fótbolti 6.10.2026 17:31
Daði Berg mættur aftur heim í ÍR Daði Berg Grétarsson hefur samið við ÍR og kemur inn í þjálfarateymi liðsins fyrir komandi átök í Bónus-deild karla. Sport 6.10.2026 16:46
Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Íslenska U21 árs landslið karla tryggði sér sæti í umspili um sæti á Evrópumótinu eftir sannfærandi 0-2 sigur á Færeyjum ytra í lokaumferð undankeppninnar í kvöld. Íslenska liðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda og treysta um leið á að Sviss myndi ekki vinna Frakkland. Strákarnir kláruðu sitt verkefni af miklu öryggi og Frakkar réttu risastóra hjálparhönd þegar þeir völtuðu yfir Svisslendinga. Umspilssæti Íslendinga er því staðreynd. Fótbolti 6.10.2026 16:16
Færeyingar misstu niður tveggja marka forskot gegn Kasakstan Kasakar og Færeyingar gerðu 2-2 í heldur viðburðarríkum leik í C-deild Þjóðadeildarinnar í Kasakstan í dag. Sport 6.10.2026 16:02
Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Fyrsta landsliðshlé tímabilsins 2026/27 er senn á enda en það hefur verið óvenju langt eins og margir hafa tekið eftir. Í fyrsta sinn var gert þriggja vikna hlé á stærstu deildum Evrópu í stað tveggja vikna eins og hefur verið undanfarin ár. Sport 6.10.2026 15:15
Lentu í vandræðum þegar þeir spáðu Sindra þægilega uppi Upphitunarþáttur Bónus-körfuboltakvölds var í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi. Sport 6.10.2026 14:30
Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Ísland heimsækir Eistland á A Le Coq leikvanginum í Tallinn í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld. Um mikilvægan leik fyrir bæði lið er að ræða og Vísir hitaði upp á Íslandstorginu í Tallinn í dag. Fótbolti 6.10.2026 13:59
Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Arnar Pétursson hefur valið 18 leikmenn í síðustu tvo leiki íslenska kvennalandsliðsins í handbolta áður en hann velur svo lokahópinn fyrir EM í Rúmeníu í desember. Handbolti 6.10.2026 13:50
„Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Nýklipptur Aron Pálmarsson stýrir FH í kvöld í fyrsta sinn í heimaleik í Evrópukeppni þegar liðið tekur á móti einu besta liði Frakklands, Limoges, í Evrópudeildinni í handbolta. Ungstirni FH-liðsins sýndu á Spáni í fyrsta leik að þau eru til alls líkleg. Handbolti 6.10.2026 13:02
Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Leikur Eistlands og Íslands í Þjóðadeild UEFA mun klárast rétt fyrir miðnætti hér í Tallinn. Landsliðsþjálfari Íslands segir að um skrýtnasta leiktímann sé að ræða. Reynslumiklir landsliðsmenn Íslands muni hins vegar ekki eiga í erfiðleikum með þetta. Fótbolti 6.10.2026 12:17
Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Besta sætið er með fókusinn í Tallin í dag enda fer landsleikur Eistlands og Íslands fram þar í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 12:01