Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga Þorsteinn Hjálmsson skrifar 20. september 2026 17:15 Landsliðsmarkverðirnir Hafdís Renötudóttir og Sara Sif Helgadóttir áttu báðar frábæran leik en Sara fagnaði sigri. vísir Haukar unnu í kvöld Val í lokaleik 3. umferðar Olís-deildarinnar. Lokatölur á Ásvöllum 28-24 í leik sem var afar jafn í fyrri hálfleik, en heimakonur sterkari í þeim síðari. Á fyrstu mínútum leiksins var sóknarleikurinn örlítið stirðu hjá báðum liðum og var staðan 1-1 eftir fimm mínútna leik. Hraðinn jókst þó á næstu mínútum og þá komu færin á færibandi. Markverðir beggja liða að verja vel og var Sara Sif Helgadóttir með tíu varða bolta í fyrri hálfleik (48% varsla). Á meðan var kollegi hennar í hinu markinu, Hafdís Renötudóttir, með sjö varin skot (35% varsla). Í fyrri hálfleiknum voru Haukar í tvígang í yfirtölu, á meðan Laufey Helga Óskarsdóttir sat í skammakróknum í tvígang í tvær mínútur. Í bæði skiptin fóru Haukar afskaplega illa með yfirtöluna og ef eitthvað er þá græddu Valkonur á þessum tveimur köflum. Liðin fylgdust að í markaskori fram að loka mínútu fyrri hálfleiks, en þá náðu Haukar að skora tvö mörk á lokamínútu fyrri hálfleiks og fóru því með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn. Staðan í hálfleik 13-11 fyrir heimakonum. Í upphafi síðari hálfleiks gekk báðum liðum bölvanlega að skora og kom fyrsta mark síðari hálfleiks ekki fyrr en eftir fimm mínútur, en þá höfðu átta færi farið í súginn hjá báðum liðum. Haukar voru þó fyrri til til þess að skora og hófu þá að mynda góða forystu sem gestirnir reyndu að eltast við. Eins marks munur var á liðunum þegar korter var eftir, staðan 18-17 fyrir Haukum. Á þeim kafla sigldu heimakonur fram úr á meðan gestirnir brenndu af dauðafærum og áttu oft erfitt með uppstilltan sóknarleik. Haukar fóru því með sigur af hólmi. Atvik leiksins Haukar skoruðu fimm mörk í röð eftir að staðan var 18-17 og drap þessi kafli heimakvenna vonir gestanna að ná einhverju út úr leiknum. Frábær kafli hjá Haukum. Stjörnur og skúrkar Markverðir beggja liða voru framúrskarandi. Bæði Sara Sif og Hafdís með 15 bolta varða í kvöld. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir bar svo af sóknarlega í leiknum. Tólf mörk frá henni fyrir Hauka í þessum leik auk þriggja stoðsendinga. Hjá Val hjó Guðrún Hekla Traustadóttir oft á hnútinn sóknarlega og var aðal drifkraftur liðsins. Tíu mörk og tvær stoðsendingar hjá henni í kvöld. Auður Ester Gestsdóttir fór illa með sín færi úr horninu. Tvö mörk úr sjö skotum úr horninu er óásættanlegt. Dómarar Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson með afbragðs tök á þessum leik. Engin risa atvik og fékk leikurinn að fljóta vel. Stemning og umgjörð Fín stemning á Ásvöllum í kvöld, en greinilegt að margir tóku sunnudagssteikina fram yfir þennan stórleik. Umgjörðin hjá Haukum alltaf fyrsta flokks. Anton Rúnarsson: „Þá er þetta helvíti erfitt“ „Þetta var hörku leikur eins og við var að búast, en mér fannst við ekki spila jafn vel í dag eins og við gerðum í síðasta leik og mér fannst vanta mjög mikið upp á í okkar leik. Auðvitað er alltaf eitthvað jákvætt og neikvætt en það vantaði alveg vel upp á hjá okkur í dag,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, eftir tapið á Ásvöllum. Að mati Antons var færanýtingin Valskonum að falli í kvöld. „Við erum að fá fullt af færum, við erum bara ekki að nýta þau og þá er þetta helvíti erfitt. Haukarnir auðvitað með frábært lið og voru kannski aðeins kaldari en við í færunum og náðu að skora þessi mörk sem að við vorum ekki að gera hinu megin. Það var svolítið munurinn. Fullt af dauðafærum, alveg trekk í trekk sem ég er mjög ósáttur með að fóru ekki inn í dag.“ Valur er að mæta með mjög breytt lið til leiks þetta tímabilið frá því síðasta og margir máttarstólpar horfnir á braut. Anton segir það þó ekki afsaka neitt í frammistöðu síns liðs. „Þetta mun taka smá tíma hjá okkur, það er klárt mál. Það eru breytingar og meiðsli og fleira, við erum ekki alveg í þeim takti sem við viljum vera í. Það afsakar ekki eitt eða neitt, við þurfum að vinna vel í okkar hlutum og koma sterkari úr þessari stöðu og munum reyna að nýta landsleikjahléið vel,“ sagði Anton að lokum. Olís-deild kvenna Valur Haukar Handbolti