„Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 29. september 2026 21:50 Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, var frábær í leik kvöldsins Vísir/Vilhelm „Ég held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld. Þetta er frábært handboltalið, spilar frábæran handbolta og er mjög rútínerað. Að vinna svona lið með ellefu mörkum er ekkert grín,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, eftir sigur á heimavelli í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í Evrópudeildinni. Danska liðið Mors-Thy lá í valnum í kvöld, en um er að ræða lið sem endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili í dönsku úrvalsdeildinni. Lokatölur 39-28 fyrir Val.
Björgvin Páll var frábær í kvöld með 20 varin skot eða rétt rúm 40 prósent markvörslu. Hornamenn Mors-Thy munu sennilega eiga martraðir um Björgvin Pál næstu nætur. „Þetta sýnir bara það að það er erfitt að koma í Valsheimilið á Evrópukvöldum. Það var bara gír í okkur, dúkurinn kominn á og við slepptum af okkur beislinu. Það ótrúlega er að við höfum átt tvo slökustu leiki míns ferils í Val, síðustu heimaleiki. Við náðum að snúa því í dag með fólkið á bak við okkur,“ sagði Björgvin Páll, en liðið tapaði síðustu tveimur heimaleikjum í Olís-deildinni sannfærandi, gegn Fram og KA. Aðspurður hvað skóp sigurinn hafði Björgvin Páll þetta að segja. „Þetta var svolítið gamla góða sem við vorum að gera í fyrra og þar áður. Við bara keyrðum á þá og vorum miskunnarlausir, sýndum þeim enga virðingu. Þeir eru með mikla og góða leikmenn en þeir geta ekkert rúllað á mörgum mönnum. Við vissum það bara að ef við myndum keyra í sextíu mínútur þá myndu þeir ekkert halda í við okkur. Að halda þessari stjórn á leiknum og vera svona orkumiklir og góðir, eftir ömurlegan leik síðast, er ekki sjálfgefið.“ Björgvin Páll segir gestina hafa verið orðna hrædda við Valsmenn sem léku á als oddi og þá sérstaklega í síðari hálfleik. „Orkan í okkur. Þú sérð það bara að þeir horfa bara í augun á okkur varnarlega og eiga bara ekki séns. Þeir voru orðnir hræddir við okkur og ég sagði fyrir leikinn að þeir ættu að vera sterkara liðið en þeir hafa aldrei komið hingað, Evrópukvöld á Hlíðarenda og mæta okkur í ham.“ Að lokum var Björgvin Páll spurður út í markmið liðsins í Evrópudeildinni. „Markmiðið frá upphafi er að komast áfram. Við vitum að við erum í rosalegum riðli og við erum að fara í rosaleg verkefni núna í framhaldinu. Við erum að fara í svona NBA útileikjaferð þar sem við tökum tvo leiki úti í röð og komum ekki heim í millitíðinni. Þetta er bara krefjandi fyrir svona lið. Í síðustu viku voru þrír búnir að misstíga sig og einn í banni og alls konar bras á okkur. Menn að koma haltrandi inn í leikinn, en svo þegar kviknar á okkur þá slökknar ekki svo auðveldlega á okkur.“
Evrópudeild karla í handbolta Valur Handbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira