Alþingi

Alþingi

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Fréttamynd

Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv

Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki

Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. 

Innlent
Fréttamynd

ESA geti ekki beðið enda­laust

ESA getur ekki beðið endalaust eftir því að íslensk stjórnvöld lagfæri innleiðingu bókunar 35 segir stjórnarmaður Eftirlitsstofnunar EFTA. Hann segir fólk og fyrirtæki hér á landi verða fyrir tjóni á meðan málið sé óleyst.

Innlent
Fréttamynd

Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt

Þingmaður stjórnarandstöðunnar sem var einn þeirra sem fjármálaráðherra kallaði „þetta lið“ segist vart trúa því að hún þurfi enn á ný að „verjast óskiljanlegum brigslyrðum“ hæstvirts fjármálaráðherra í sinn garð. Hún hafni því sem hann haldi fram um að hún hafi sagt hallarekstur hvergi koma niður og krefst þess að ráðherra vísi þá til hvenær hún hafi gert það.

Innlent
Fréttamynd

Í mál gegn Ís­landi fyrir van­efndir á bókun 35

Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann

Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkurinn tapar fylgi

Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og bætir við sig fylgi um rúmt prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi um tæp tvö prósentustig og Flokkur fólksins mælist enn utan þings. 

Innlent
Fréttamynd

Ekki á­kveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endur­flutt

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026.

Innlent
Fréttamynd

„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“

Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og Bóas Valdórsson, varaformaður samtakanna og framkvæmdastjóri Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar, kalla eftir viðbrögðum og plani frá stjórnvöldum til að bregðast við löngum biðlistum barna eftir greiningu vegna ADHD. Þúsundir barna og fullorðinna bíða og vandinn þyngist bara á meðan biðin lengist.

Innlent
Fréttamynd

Stutt geti verið í kosningar

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins telur að ríkisstjórnin eigi ekki langt eftir og að stutt geti verið í alþingiskosningar.

Innlent
Fréttamynd

Segir merki­legt að einkaskilaboð séu rædd á Al­þingi

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að svara verði því í hvaða umboði fyrrverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga hafi sent skilaboðin umdeildu þar sem honum voru gefnir tveir kostir, afsögn eða stríð. Þingmaður Samfylkingarinnar segir merkilegt að einkaskilaboð milli fólks séu til umræðu í pontu Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki hafa talið sig eiga neitt val um afsögn þar sem hann hafði ekki heilsu til þess að berjast fyrir embætti sínu eftir aðgerð. Hann eigi í dag engin samskipti við Ingu Sæland, sem hafi eytt honum af vinalista sínum á Facebook.

Innlent
Fréttamynd

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta?

Í skilaboðum sem Guðmundur Ingi Kristinsson fékk fyrir afsögn sína var honum sagt að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hefðu tekið ákvörðunina um brotthvarf hans. Sömu skilaboðum fylgdi tillaga að yfirlýsingu um að hann hefði sjálfur ákveðið að hætta.

Innlent
Fréttamynd

„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Ályktunin var lögð fram af formanni sambandsins, Almari Guðmundssyni.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal

Guðmundur Ingi Kristinsson segir Ingu Sæland hafa vitnað í ráðherrasamtal sem um gildi trúnaður í ræðustól Alþingis í gær. Honum segist létt eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu. Sannleikurinn sé staðreynd en ekki upplifun.

Innlent
Fréttamynd

Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum

Tilraunir með svokallaðan kosningahermi benda til þess að með núverandi kosningakerfi náist ekki fullur jöfnuður milli þingflokka í um öðrum hverjum kosningum. Þorkell Helgason stærðfræðingur segir kjördæmissætin oft hafa verið of mörg og jöfnunarsætin of fá.

Innlent
Fréttamynd

Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt al­veg rétt frá

Birgir Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri, segir umræðu í kringum afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar óheppilega fyrir Ingu Sæland, Flokk fólksins og ríkisstjórnina í heild. Kjarni málsins sé að Inga Sæland hafi ekki sagt alveg satt og rétt frá og það geti rýrt traust. Rætt var við Birgi í Bítinu á Bylgjunni um málið.

Innlent
Fréttamynd

„Mis­tök að fela honum for­ystu“

Guðmundur Ingi Þóroddsson segir að það hafi verið mistök að fela nafna sínum, Guðmundi Inga Kristinssyni, forystu í mennta- og barnamálum. Hann telur rétt hafa verið að skipta um ráðherra en segir að það breyti því ekki að gagnrýna megi hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ríkisstjórn.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta var rétt á­kvörðun“

„Það eru auðvitað tvær hliðar á öllum svona málum. Guðmundur Ingi tók sjálfur þá ákvörðun að segja af sér sem ráðherra. Hann tilkynnti þetta, hann sagði frá þessu sjálfur og komst að þeirri niðurstöðu með hliðsjón af heilsufari sínu. Auðvitað segir það sig sjálft að svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi.“ 

Innlent
Fréttamynd

Orðin lýsi skeytingar­leysi ríkis­stjórnarinnar

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir orð Ingu Sæland, starfandi forsætisráðherra, sem sagði henni að „stíga í eigin skítapott“, lýsa skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar. Viðbrögðin komu henni ekki á óvart.

Innlent