Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Agnar Már Másson skrifar 6. október 2026 18:40 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, nóttina eftir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Nú leggja flokkarnir til að ESB-umsóknin verði dregin til baka. Anton Brink Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagt fram tillögu fyrir þingið um að Ísland afturkalli aðildarumsókn sína að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra hefur áður gefið út að umsóknin muni standa óhögguð.
Þingsályktunartillagan var lögð fram í dag af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins er aðalflutningsmaður tillögunnar að því er fram kemur á vef Alþingis. Auk hennar eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, flutningsmenn. Þar er lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að tilkynna Evrópusambandinu þá afstöðu að afturkalla eigi umsóknina með skýrum og ótvíræðum hætti og afla í kjölfarið skriflegrar staðfestingar frá sambandinu á stöðu Íslands. Þorgerður sagði stöðu umsóknar óbreytta Í greinargerð tillögunnar segir að þar sem þjóðin hafi hafnað því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju eigi ekki að hafa stöðu umsóknarríkis en Íslendingar höfnuðu að taka upp á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hinn 29. ágúst með um 53 prósenta meirihluta. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í bréfi til ESB í september að staða aðildarumsóknar Íslands yrði enn óbreytt. Flutningsmenn telja að umsókn Íslands hafi þegar verið afturkölluð með bréfum þáverandi utanríkisráðherra og forsætisráðherra til Evrópusambandsins árið 2015. Þar hafi skýrt komið fram að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki. Núverandi ríkisstjórn líti hins vegar svo á að umsóknin hafi ekki verið formlega afturkölluð og sé því enn í gildi. Stjórnarandstöðumál sjaldan samþykkt Erfitt er að sjá fyrir hvort málið njóti nægilega mikils stuðnings á þinginu. Vert er að taka fram að mál sem stjórnarandstöðuliðar leggja fram eru sjaldan samþykkt á þinginu. Það þarf aftur á móti ekki að vera ómögulegt að málið komist í gegn. Taka þarf inn í reikninginn að ríkisstjórnarflokkarnir þrír – Flokkur fólksins, Viðreisn og Samfylkingin – eru ekki lengur með hreinan meirihluta á þingi eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, sem kveðst þó enn styðja ríkisstjórnina, sagði sig úr Flokki fólksins og gerðist óháður þingmaður. Sömuleiðis voru skiptar skoðanir meðal þingmanna Flokks fólksins um nýafstaðna atkvæðagreiðslu. Þá er bent á í greinargerð þingsályktunartillögunnar að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hafi sjálf lagt fram sambærilega tillögu á sex löggjafarþingum án þess að hún hlyti afgreiðslu. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur telur samt afar ólíklegt að málið eigi eftir að reyna á samheldni innan meirihlutans þar sem það breyti það litlu hvort umsóknin verði afturkölluð eða ekki. „Þetta er í rauninni tæmt mál, það er í rauninni ekki um neitt,“ segir Eiríkur. Þegar upp er staðið sé það viðsemjandinn, Evrópusambandið, sem taki við umsóknum og ákveði hvað hann skuli gera við þær. „Einhver samþykkt á Íslandi hefur ekkert um það að segja. Þrátt fyrir allan móðreykinn í umræðunni heima þá hljóta þingmenn á endanum að sjá þetta,“ bætir hann við. „Það eina efnislega í málinu snýst um það, ef framtíðarríkisstjórn sækir um aðild, hvaða augum Evrópusambandið lítur á það.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Flokkur fólksins Viðreisn Alþingi Samfylkingin Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira