Innlent
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju. Innlent 21.10.2026 08:32
Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku Tveir voru fluttir á bráðamóttöku í gær eða í nótt eftir að hafa dottið af rafmagnshlaupahjóli. Einstaklingarnir voru saman á einu hjóli og óskuðu eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíls. Innlent 21.10.2026 06:18
„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Jasmina Vajzovic, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, gagnrýnir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Innlent 20.10.2026 23:58
Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar segist hafa verulegar áhyggjur af áformum dómsmálaráðherra um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Hann segir farið gegn vilja landsbyggðarinnar í málinu og er hann efins um að staðið verði við loforð um að lögreglustöðinni á Ísafirði verði ekki lokað. Lögreglumenn á Vestfjörðum hafi lýst yfir áhyggjum af málinu Innlent 20.10.2026 22:00
Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. Innlent 20.10.2026 21:12
Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala kallar eftir frekari rannsóknum á notkun geðrofslyfsins quetiapíns við svefnleysi. Notendum lyfsins hefur fjölgað verulega á síðustu tíu árum, einkum meðal eldra fólks. Hún segir þær fáu rannsóknir sem liggja fyrir benda til þess að lyfið geti haft jafnmiklar aukaverkanir og hefðbundin svefnlyf. Innlent 20.10.2026 20:02
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir það fjarri sinni skoðun að dæma eigi fólk út frá kynferði, lit eða trú. Hann segir að á sama tíma séu miklar samfélagslegar breytingar að verða á Íslandi og að hann hafi áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Tími sé kominn á að halda skrá utan um þjóðerni þeirra sem fremji ofbeldisbrot líkt og gert sé í Danmörku. Innlent 20.10.2026 18:05
Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Reykjavíkurborg skoðar að hafa aðeins einn inngang opinn í grunnskólum á ákveðnum tímum skóladagsins og stýra betur hverjir komast inn. Borgarstjóri greindi frá þessu þegar hún svaraði fyrirspurn um öryggi í skólum og frásagnir af kennurum sem hefðu orðið fyrir ofbeldi. Innlent 20.10.2026 17:22
Sigurvin kallaður út vegna Hildar Björgunarskipið Sigurvin var kallað út í morgun vegna 475 tonna fiskiskips að nafni Hildur sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og varð í kjölfarið aflvana. Skipið var statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar. Innlent 20.10.2026 17:00
Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Karlmaður hefur verið dæmdur til 3,5 ára fangelsisvistar fyrir gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa tekið konuna kyrkingartaki en dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði haft ásetning til þess að myrða konuna. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi í garð konunnar og einnig fyrir að nauðga barni. Innlent 20.10.2026 16:34
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk Fólk sem hefur verið dæmt fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir gæti fengið að annast fatlað fólk samkvæmt frumvarpsdrögum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Einhverfusamtökin gagnrýna áformin og telja nauðsynlegt að meta áhrif þeirra á öryggi þjónustunotenda. Innlent 20.10.2026 16:33
„Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist döpur að hafa misst Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar og vonar að hann snúi til baka. Hún segir þingflokkinn og forystu flokksins taka gagnrýni hans til greina. Innlent 20.10.2026 15:58
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra. Innlent 20.10.2026 15:17
Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að fangelsið að Stóra-Hrauni fái að rísa því að á Íslandi hafi aldrei verið hannað eða byggt fangelsi sem er öryggisfangelsi. Hún segir Íslendinga eftirbáta annarra Norðurlanda. Innlent 20.10.2026 15:03
Stefna á að hefja leit í nóvember Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum. Innlent 20.10.2026 14:52
Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Fyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram. Innlent 20.10.2026 14:28
Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tekur klukkan 14 í dag fyrstu skóflustunguna að öryggisfangelsinu við Stóra-Hraun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður fylgdist með athöfninni. Innlent 20.10.2026 13:31
Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Nítján lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar segja að nýlegur dómur Hæstaréttar feli í sér tilmæli til Alþingis um að uppfæra þurfi skaðabótalög og færa þau til nútímans. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra. Innlent 20.10.2026 13:00
Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Karlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar eftir að hafa játað 89 þjófnaðarbrot. Hann stal vörum úr verslunum fyrir um 3,5 milljónir króna. Innlent 20.10.2026 12:42
Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki komi til greina að endurskoða áform um breyttan einkunnakvarða.Áform hennar um nýtt einkunnakerfi í grunnskólum þar sem tölustafir verða teknir upp að nýju hafa hlotið töluverða gagnrýni. Málið var rætt á þingi í gær og var Inga Sæland menntamálaráðherra þar gagnrýnd fyrir sín svör. Innlent 20.10.2026 12:41
Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Yfirmaður öldrunarlækninga á Landspítalanum kallar eftir frekari rannsóknum á geðrofslyfi sem næstum tvöfalt fleiri nota nú en fyrir tíu árum síðan. Sterkar vísbendingar eru um að hluti lyfjanotkunar vegna svefnvanda sé að færast á aðra lyfjaflokka. Innlent 20.10.2026 11:47
Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, „valda skaða“. Ummælin lét hann falla í tengslum við mótmæla- og óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland. Innlent 20.10.2026 09:48
Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir embætti landlæknis nú vinna að því að endurmeta fyrirkomulag bólusetninga vegna RS-veiru næstu árin. Virkni bóluefnisins dvíni eftir um fimm til sex mánuði og því sé best að gefa það meðan á faraldri stendur eða í aðdraganda hans. Markhópurinn hafi verið skilgreindur með tilliti til þess og það sé ástæðan fyrir því að aprílbörn hafi ekki fengið bóluefnið. Foreldrar þeirra hafa gagnrýnt fyrirkomulagið. Innlent 20.10.2026 08:53
Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir þrjú ofbeldisbrot í Bolungarvík og á Ísafirði. Helmingur dómsins er skilorðsbundinn. Maðurinn kýldi barþjón og dyravörð og veittist að systkinum. Innlent 20.10.2026 08:39
Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Edit Ómarsdóttir tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Hún skipaði 2. sæti á lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í kosningunum 2024. Oddvitinn er í fríi í Víetnam. Innlent 20.10.2026 07:22
Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Næstum tvöfalt fleiri fá geðrofslyf nú en fyrir tíu árum. Aukningin er sérstaklega mikil meðal eldra fólks. Geðlæknir segir lyfið í vaxandi mæli notað við svefnleysi í stað hefðbundinna svefn- og róandi lyfja. Notkun geðrofslyfsins sé þó ekki samþykkt sem svefnlyf og rannsóknir á áhrifum þess, einkum hjá öldruðum, séu af skornum skammti. Innlent 20.10.2026 06:47
Brikk lokað í óákveðinn tíma Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í 109 verkefnum síðastliðinn sólarhring. Í tveimur þeirra voru kallaðir til dælubílar en rest voru boðanir á sjúkrabíla. 26 boðanir voru á forgangi. Eldur kviknaði í húsnæði Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði. Innlent 20.10.2026 06:43
Skakkur á rafskútu Keyrt var á mann sem ók um á rafskútu í hverfi 105 í Reykjavík í gær eða í nótt. Minnháttar meiðsli urðu á manninum sem ók rafskútunni en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Innlent 20.10.2026 06:25
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum. Innlent 19.10.2026 22:02
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sjálfkeyrandi bíla mætti prófa í almenningssamgöngum í Vestmannaeyjum, að mati Sigríðar Andersen, þingmanns Miðflokksins. Innviðaráðherra tekur vel í hugmyndina og segir slíkar tilraunir á Heimaey koma vel til greina. Innlent 19.10.2026 21:01