Erlent

Her­lið á leiðinni og Ís­lendingar hafi varann á

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mótmælendur kveiktu eld við dómkirkjuna í Mílanó.
Mótmælendur kveiktu eld við dómkirkjuna í Mílanó. LaPresse/AP/Stefano Porta

Ítalir ætla að senda fimm hundruð hermenn til Mílanóborgar um helgina vegna mótmæla sem fyrirhuguð eru þar og Frakkar gera slíkt hið sama í París. Óeirðir hafa orðið víða í Evrópu síðustu daga og hefur utanríkisráðuneytið hvatt Íslendinga til að hafa varann á þegar ferðast er um álfuna. 

Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í Frakklandi, Ítalíu og Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.

Í fréttinni hér fyrir neðan má lesa nánar hvað olli því að mótmælaaldan fór af stað.

Fara ránshendi um göturnar

Í frönskum borgum á borð við París, Marsaille og Lyon hafa óeirðaseggir farið ránshendi um verslanir og kveikt í byggingum og bílum. Farið var fram á útgöngubann í kjölfarið og sagði innanríkisráðherra Frakklands að stjórnvöld hefðu misst stjórn á ástandinu í borgunum. 

Búið er að boða til mótmæla víða um Evrópu um helgina og ítölsk yfirvöld ákveðið að herinn muni aðstoða lögreglu við að koma í veg fyrir að hlutirnir fari úr böndunum.

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur einnig tilkynnt að þeir sem taka þátt í óeirðum fái þyngri dóm en áður og að foreldrar barna sem taka þátt í því að ræna úr verslunum og fremja skemmdarverk verði gerðir fjárhagslega ábyrgir fyrir gjörðunum. 

Í Frakklandi munu hermenn standa vörð um helstu kennileiti og byggingar Parísar en komi til átaka verða þeir að kalla lögreglu til. 

Óeirðaseggir hafa framið skemmdarverk víða um París.EPA/Mohammed Badra

Ungmenni meðal handteknu

Búið er að loka útibúum fjölda tískuverslana í Mílanó af ótta við ástandið og hafa tískuhús á borð við Chanel og Dior fjarlægt allar vörur úr gluggum verslana sinna til að reyna að koma í veg fyrir þjófnað. 

„Ríkisstjórnin mun bregðast af festu við þessum árásum á ríkið, ​meðal annars með aðgerðum sem miða að því að draga úr ofbeldi af hálfu ólögráða ungmenna,“ sagði Antonio Tajani, utanríkisráðherra Ítalíu, á mánudag. 271 var handtekinn í Mílanó síðustu helgi, þar af 23 ungmenni. 

Lögreglumenn í átökum við mótmælendur í Mílanó.LaPresse/AP/Stefano Porta

Kynni sér kröfur ríkja

Utanríkisráðuneyti Íslands birti í gær færslu á samfélagsmiðlum þar sem fólk var hvatt í ljósi frétta um mótmæli og óeirðir í Evrópu til að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað. 

„Hafa ber hugfast að reglur og/eða leiðbeiningar staðaryfirvalda geta breyst hratt. Ferðafólk ber alltaf sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi,“ segir í færslunni. 


Tengdar fréttir

Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“

Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 

Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“

Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×