Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Smári Jökull Jónsson skrifar 19. október 2026 06:39 Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn Laurent Nunez innanríkisráðherra. Vísir/AP Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt.
Mikil pressa hefur verið á Nunez innanríkisráðherra eftir að mótmæli með tilheyrandi ofbeldi og skemmdarverkum brutust út um helgina víða um Frakkland, meðal annars í stórborgunum París, Lyon og Marseille. Bauðst Nunez til að segja af sér en að sögn miðilsins Elyse Palace neitaði Macron að samþykkja afsögnina og sagði nauðsynlegt að „tryggja áframhaldandi stjórn yfir löggæslu landsins“. Á laugardag og aðfaranótt sunnudags voru að minnsta kosti 1.200 handtekin í mótmælum stúdenta víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt. Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum. Meðal annars var ráðist að lögreglustöðvum á nokkrum stöðum og í Marseille var sömuleiðis gert áhlaup á ráðhús borgarinnar og kveikt var í skrifstofu ferðamála í Lyon. Neyðarfundur í dag Dró úr mótmælunum í gærkvöldi og í nótt sem héldu þó áfram á nokkrum stöðum. Í París voru yfir hundrað manns handteknir og brotist inn í fimm verslanir. Að sögn lögreglunnar í París voru „litlir hópar tækifærissinna“ á ferð um Chatelet verslunarhverfið og notaði lögregla táragas gegn þeim. Sebastien Lecornu forsætisráðherra hefur boðað til neyðarfundar með ríkisstjórninni í dag vegna mótmælanna þar sem efnahagurinn, tryggingar og löggæsla verða til umræðu í kjölfar mótmælanna. Mikil pressa hefur verið á ríkisstjórninni vegna mótmælanna og tilraun Nunez innanríkisráðherra að segja af sér kom í kjölfar ákalls stjórnarandstöðuþingmanna þar að lútandi. Mótmælt á fleiri stöðum í Evrópu Mótmæli hafa sömuleiðis brotist út annars staðar í Evrópu, meðal annars á Ítalíu og í Albaníu. Þar var steinum og bensínsprengjum kastað að óeirðalögreglu sem reyndi að verjast áhlapi gegn menntamálaráðuneyti landsins. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur einnig boðað til neyðarfundar í dag en yfir fimm þúsund söfnuðust saman í Mílanó til að mótmæla hækkandi verðlagi. Er haft eftir Meloni að óeirðaseggir hafi nýtt sér mótmælin til að skapa ringulreið en lögregla í borginni notaði stórar vatnskanónur og táragas gegn mótmælendum sem köstuðu gangstéttarhellum, ruslatunnum og stólum að lögreglumönnum.
Frakkland Ítalía Albanía Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira