Erlent

Tals­maður Trumps rekinn eftir brösug­lega byrjun

Freyja Þórisdóttir skrifar
Zacharia þykir ekki hafa staðið sig nægilega vel á fyrsta og eina blaðamannafundi sínum sem upplýsingafulltrúi Hvíta hússins.
Zacharia þykir ekki hafa staðið sig nægilega vel á fyrsta og eina blaðamannafundi sínum sem upplýsingafulltrúi Hvíta hússins. Getty

Katie Zacharia entist ekki lengi í starfi upplýsingafulltrúa Hvíta hússins en hún hefur verið leyst frá störfum aðeins örfáum dögum eftir að hún steig í pontu á sínum fyrsta blaðamannafundi í vikunni.

Frá þessu greinir bandaríski miðillinn TMZ en þar segir einnig að hún hafi sinnt starfinu í minna en viku. Zacharia er 42 ára gömul. Hún starfaði í skamman tíma fyrr á árinu sem talsmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna og hefur verið gestur hjá bæði Fox News og Newsmax. 

Þá var blaðamannafundurinn síðasta þriðjudag umræddur en hann stóð yfir í um fjórtán mínútur. Þar svaraði hún einungis spurningum frá þremur blaðamönnum og á þeim tíma leit hún ítrekað niður og virtist lesa handrit. Hún muldraði á köflum, ruglaðist á forsetanum og eiginmanni sínum.

Greint var frá því stuttu eftir fundinn að samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu væru byrjaðir að velta vöngum yfir því hve lengi hún geti varið í starfinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti gekk úr Hvíta húsinu með Zacharia eftir fundinn á þriðjudag þar sem blaðamenn biðu eftir honum. Þar sagði hann að hún hefði staðið sig mjög vel.

Þegar Trump tilkynnti að hún yrði upplýsingafulltrúi hans titlaði hann hana sem lögmann, sem hún hefur einnig gert. Trump var í gær spurður að því hvar hún hefði staðist lögmannapróf og leit hann þá á hana og Zacharia svaraði: „Þegar ég flutti til Kína.“

Samkvæmt heimildarmönnum CCN sínum í Hvíta húsinu á Trump sjálfur að hafa beðið Zacharia um að halda blaðamannafundinn og vakti það furðu, þar sem hún var á þeim tímapunkti mjög ný í starfinu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×