Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2026 13:47 Einn palestínskur maður var skotinn af hermönnum. Herinn segir hann hafa hlaupið í átt að þeim með beittan hlut í hendinni. AP/Leo Correa Tugir ísraelskra landtökumanna brenndu ólífutré og réðust á Palestínumenn sem voru að safna ólífum. Þar að auki réðst hópur manna á bandarískan ljósmyndara á vegum Washington Post en þeir börðu hana og rændu. Mennirnir réðust einnig á palestínska samstarfsmenn hennar.
Árásin átti sér stað nærri þorpinu Abu Falah á Vesturbakkanum. Íbúar þorpsins voru að safna uppskerunni þegar grímuklæddir landtökumenn, um áttatíu talsins, komu á vettvang og grýttu Palestínumennina. Í frétt Reuters segir að sumir þeirra hafi notað slöngvur til að grýta Palestínumennina. Einhverjir þeirra síðarnefndu köstuðu grjóti á móti og notuðu líka slöngvur en þá komu ísraelskir hermenn á jeppum á svæðið og skutu táragasi að Palestínumönnunum. Landtökumennirnir héldu áfram að kasta grjóti og brenna ólífutré, eftir að hermennina bar að garði. Ljósmyndari Reuters segist hafa séð að minnsta kosti einn landtökumann skjóta úr byssu. Á meðan á þessu gekk réðst hópur manna að bandaríska ljósmyndaranum Heidi Levine, sem vinnur fyrir Washington Post. Myndbönd af árásinni hafa verið í dreifingu á netinu í morgun. This video captures settlers beating Heidi. They clubbed her, kicked her. Pulled her up off the ground to beat her more. Robbed her of all her equipment. If she didn’t have a helmet—and if she was Palestinian—she could be dead. https://t.co/hKV5coFvaD— jasper nathaniel (@infinite_jaz) October 16, 2026 Í samtali við Reuters segir Levine að mennirnir hafi hrint henni í jörðina og sparkað ítrekað í hana. Hún segist þakklát fyrir að hafa verið með hjálm og í hlífðarvesti, því annars hefði hún mögulega látið lífið í árásinni. Þar hafi ekki hætt að sparka í hana fyrr en palestínskir samstarfsmenn hennar komu henni til aðstoðar og fluttu á sjúkrahús. Auk hennar særðist einn annar en hann var skotinn af ísraelskum hermönnum. Palestínskur maður notar slöngvu gegn landtökumönnum.AP/Leo Correa Aukið ofbeldi landtökumanna Ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum hefur aukist til muna að undanförnu. Ráðist hefur verið á marga Palestínumenn við uppskeru og hefur ísraelski herinn gert lítið ef eitthvað til að stöðva landtökumennina. Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú hefur fjölgað landtökubyggðum á svæðinu til muna. Þessar byggðir eru ólöglegar en á Vesturbakkanum búa nú um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna. Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, lýsti því yfir í síðasta mánuði að hann vildi að Ísraelar færu í stríð á Vesturbakkanum, leystu upp heimastjórnina og beittu þar sambærilegum aðferðum og á Gasaströndinni.
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér Sjá meira