„Við erum að gefa boltann upp“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál. Innlent 7.10.2026 18:02
Þétta samstarfið í útnorðri Ísland, Færeyjar og Grænland hyggjast efla viðskiptasamstarf sín á milli en leiðtogar vestnorrænu landanna sátu í dag hringborð með fjárfestum á Norður-Atlantshafi. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir landanna hittast gagngert í einu landanna til að funda. Innlent 7.10.2026 18:01
„Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf. Innlent 7.10.2026 16:20
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar. Innlent 7.10.2026 14:28
Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa. Innlent 7.10.2026 14:20
Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. Innlent 7.10.2026 14:18
Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim. Innlent 7.10.2026 14:10
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði. Innlent 7.10.2026 14:03
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Notkun þekktra laga eða radda flytjenda í pólitískum áróðri getur gefið almenningi til kynna að listamaður styðji viðkomandi málstað. Þetta sagði Sverrir Bergmann Magnússon á Alþingi í dag og hvatti stjórnmálaflokka og þingmenn til að tryggja nauðsynleg leyfi áður en kynningarefni er birt. Innlent 7.10.2026 13:58
Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland. Innlent 7.10.2026 13:31
Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hversu auðvelt sé að sækja og misnota myndefni sem þeir deili af börnum sínum. Sem dæmi sé vitað að myndbönd af börnum að borða og dansa séu vistuð oftar en önnur myndbönd. Innlent 7.10.2026 13:31
Kennarar boða tíðindi Kennarasamband Íslands boðaði í dag til blaðamannafundar þar sem sambandið kynnti sína sýn og áherslur til bætingar menntakerfis Íslands. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 7.10.2026 13:31
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið. Erlent 7.10.2026 13:25
Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Karlmaður á sextugsaldri er í haldi sænsku lögreglunnar grunaður um að hafa stungið konu sem var einnig á sextugsaldri til bana fyrir utan matvöruverslun í Malmö í morgun. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og ná af honum hnífi. Erlent 7.10.2026 13:16
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. Innlent 7.10.2026 13:04
Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. Innlent 7.10.2026 12:51
Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Háskóli norðurslóða og Háskóli Íslands standa að opnu málþingi um áskoranir norðurslóða. Viðburðurinn fer fram í Háskóla Íslands í aðdraganda Hrinborðs norðurslóða. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 7.10.2026 12:32
Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Bandarískir hermenn sem eru á japönsku eyjunni Okinawa hafa verið settir í útgöngubann eftir að einn þeirra var sakaður um að hafa myrt og rænt konu á eyjunni. Erlent 7.10.2026 12:21
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 12:09
Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Formaður Heimilis og skóla skorar á mennta- og barnamálaráðherra að endurvekja áform um að lengja skólaár grunnskólabarna. Rökfærslur formanns Kennarasambandsins eigi sér enga stoð. Þróun námsins á Íslandi ætti ekki að snúast einungis um kjarabaráttu kennara, sem bitni á námi barnanna. Innlent 7.10.2026 11:49
Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Formaður Eflingar segir glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 11:41
Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 7.10.2026 11:31
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. Innlent 7.10.2026 11:11
Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hæstiréttur Spánar aflétti í gær handtökuskipun á hendur Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Katalóníu. Hann gæti því snúið aftur úr tæplega níu ára langri sjálfskipaðri útlegð frá því að hann stóð fyrir ólöglegri atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. Erlent 7.10.2026 10:35