Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, og Beinir Johannesen, lögmaður Færeyja, hafa fundað í dag og hefst blaðamannafundur þeirra í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 17. Innlent 7.10.2026 16:17
Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um leigubremsu ríkisstjórnarinnar eru „fullkomlega óábyrg“, að mati Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann spurði á Alþingi í dag hvort seðlabankastjóri teldi stjórnvöld á Norðurlöndum ekki kunna grundvallarhagfræði og líkti stýrivöxtum við verðstýringu. Innlent 7.10.2026 15:26
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar. Innlent 7.10.2026 14:28
Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Dómsmálaráðherra kynnti nú nýverið fyrirhugaðar breytingar um að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú. Samkvæmt tillögunni eiga lögregluembættin á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra að sameinast í eitt embætti. Skoðun 7. október 2026 08:02
Einkunnakerfi í öngstræti Markmið mennta- og barnamálaráðherra var að einfalda einkunnakerfi grunnskólanna, gera það samræmdara og auka jafnræði við útskrift. Þessi markmið munu ekki nást með þeim breytingum sem kynntar hafa verið. Skoðun 7. október 2026 07:32
Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Flokkur breskra Græningja, samþykktu á dögunum nýja stefnu gegn zíonisma og tveggja ríkja lausninni. Þeir segja, og er ég sammála mjög, að Palestínumenn og gyðingar ættu að búa saman í einu ríki með sömu lagalegu réttindi, ólíkt þeirri rasísku stefnu sem viðhefst hefur í nýlenduríkinu Ísrael frá stofnun þess í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. Þeir segja einnig að jafnaðarmenn Bretlands ættu að hætta að handtaka stuðningsfólk Palestine Action, aðgerðahóps stuðningsmanna Palestínu í Bretlandi. Skoðun 7. október 2026 07:00
Segja boltann hjá stjórnvöldum Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði. Innlent 6. október 2026 21:27
Greinir skýran vilja til meira samstarfs Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra. Innlent 6. október 2026 18:46
Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagt fram tillögu fyrir þingið um að Ísland afturkalli aðildarumsókn sína að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra hefur áður gefið út að umsóknin muni standa óhögguð. Innlent 6. október 2026 18:40
Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35, að mati Sigríðar Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins. Hún sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi í dag. Innlent 6. október 2026 16:42
Barnaspítalabindi Billy stal senunni William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann bar enn einu sinni óvenjulegt og litríkt bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu. Tíska og hönnun 6. október 2026 15:56
Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir kaupum á varamótorum í ferjuna Herjólf í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Rekstrarfélag Herjólfs óskaði í gær eftir 65 milljónum króna til að geta keypt tvo varamótora í ferjuna. Innlent 6. október 2026 15:55
Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Við Íslendingar erum stolt af tónlistarfólkinu okkar, rithöfundunum, myndlistarfólkinu, leikurunum og öðru skapandi fólki sem hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Skoðun 6. október 2026 15:02
Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Fólki sem hefur búið á Íslandi í þrjú ár eða lengur yrði gert að greiða sjálft fyrir túlkun erlendra tungumála hjá stjórnvöldum og í heilbrigðisþjónustu, samkvæmt nýju frumvarpi tíu þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Innlent 6. október 2026 14:29
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. Innlent 6. október 2026 14:26
Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Leit að eftirmanni Harðar Arnarsonar í starfi forstjóra Landsvirkjunar hefði hafist í haust eða vetur, að sögn Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns. Hún segir næsta forstjóra þurfa að vera öflugan leiðtoga með reynslu af stjórnun og stórum verkefnum. Innlent 6. október 2026 13:02
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Bjarni Guðjónsson, sem fer fyrir íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, hefur svarað Brynjari Karli Sigurðssyni körfuboltaþjálfara og segir það úr vegi að verið sé að hrekja íþróttafélagið Aþenu úr Austurbergi. Innlent 6. október 2026 12:49
Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina. Innlent 6. október 2026 11:49
Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs. Innlent 6. október 2026 11:39
Rubio: Ísland í miðjunni Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga. Innlent 6. október 2026 11:35
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum. Innlent 6. október 2026 11:01
Kristrún valdi Victoriu Beckham Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er þekkt fyrir stílhreinan og glæsilegan klæðaburð og sló ekki slöku við í fatavalinu í morgun. Tíska og hönnun 6. október 2026 10:20
Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, kallar eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný. Bensínlítri kostar nú 253 krónur á höfuðborgarsvæðinu en víða á landsbyggðinni allt að 274 krónur samkvæmt vef Gasvaktarinnar. Lítri af dísilolíu kostar nú víðast hvar um 300 krónur. Viðskipti innlent 6. október 2026 10:08
Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á Íslandi og fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Fylgst var með heimsókn hans hér á Vísi. Innlent 6. október 2026 07:15