Tíska og hönnun

Fréttamynd

Barnaspítalabindi Billy stal senunni

William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann bar enn einu sinni óvenjulegt og litríkt bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu.

Tíska og hönnun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París

Íslensk hönnun var í hávegum höfð í sjóðheitu teiti í París á dögunum í tilefni af tískuvikunni þar. Þrír íslenskir listamenn komu þar saman að sýningunni „Reykjavík“ sem haldin var í Le Marais-hverfinu, sem er þekkt fyrir tísku, sjarma og töffara.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni

Gull, glans og elegans tók yfir bláa dregilinn á Emmy-hátíðinni í gær þar sem skærustu sjónvarpsstjörnur heimsins klæddu sig upp og vonuðust eftir því að fara heim með styttu. Grínistinn og leikkonan Megan Stalter gerði gott betur og klæddi sig upp sem verðlaunastyttan. 

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Tískan við þing­setningu: Sól­gler­augu, haustlitir og Sig­mundur Ernir stal senunni

Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og enginn breyting varð þar á í dag. Tískuunnendur bíða oft spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið. Ljósir haustlitir voru áberandi í ár og báru margir þingmenn sólgleraugu vegna blíðunnar. Ótvíræður tískusigurvegari var Sigmundur Ernir sem minnti helst á Philip Marlowe.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða af­mælið

Vinkonurnar Berglind Halla Elfudóttir og Hanna Eiríksdóttir Mogensen opnuðu í sumar verslunina Lúpínu í Nóatúni 17. Þar getur fólk verslað ýmsa notaða muni, húsgögn og föt. Þær segjast hafa fundið fyrir gati á markaði með fínni nytjahluti. Húsgögnin og húsmunirnir séu sérstaklega vinsæl í versluninni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Allir og amma þeirra mættu í þjóð­búningi

Það var líf og fjör á þjóðbúningahátíð í Þjóðminjasafni Íslands um helgina þar sem fjöldi fólks mætti í sínu fínasta þjóðlega pússi. Á hverju hausti fagnar Þjóðminjasafnið íslenska þjóðbúningnum með hátíð kringum dánardag Sigurðar málara Guðmundssonar

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Til­gangs­laust að rakka niður klæða­burð fólks

„Fyrir mig persónulega fara þægindi og sjálfstraust saman,“ segir hin 28 ára gamla Rebekka Ellen Daðadóttir sem starfar sem lögfræðingur og er mikill tískuunnandi. Rebekka hefur alltaf haft ákveðnar hugmyndir um eigin stíl og ekki nóg með það að hafa gaman af því að klæða sjálfa sig upp þá er hundurinn hennar sömuleiðis mikil tískudrottning.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ís­lenskar systur slá í gegn í módelbransanum

„Við vorum mjög líkar þegar við vorum yngri, bæði í útliti og stíl, og við deildum einnig mörgum áhugamálum, eins og að spila í sinfóníuhljómsveit, dansa og auðvitað að módelast,“ segja systurnar Júlía og Senía Guðmundsdætur Gähwiller sem búa í sitt hvoru landinu erlendis og starfa báðar sem fyrirsætur. Blaðamaður ræddi við þær um þeirra ævintýri.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“

„Mig langaði ekkert til að vera skvísa fyrr en töluvert seinna. Ég rakaði líka af mér allt hár þegar ég var tólf ára bara af því ég gat það,“ segir hin 21 árs gamla Aðalfríður Mekkín Samúels, sem er oftast kölluð Mekkín. Hún er mikill tískuunnandi, er óhrædd við að skera sig úr og hefur sannarlega gaman að því að klæða sig upp en hún ræddi við blaðamann um stílinn sinn og fataskáp.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu

Hin 24 ára gamla María Hrund naut sín í botn á tískuviku í Kaupmannahöfn full af innblæstri á meðan hún veitti tískuinnendum sjálf mikinn innblástur með frumlegum og skemmtilegum klæðaburði. María starfar sem verslunarstjóri Andrá Reykjavíkur og lifir og hrærist í heimi tískunnar.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Hef engar á­hyggjur af því hvað þeim finnst“

„Ég elska þegar fólk klæðist litríkum fötum, það birtir svo til á móti gráa veðrinu hér heima,“ segir hin nítján ára gamla Rakel María Gísladóttir. Rakel starfar sem plötusnúður og hefur mikinn áhuga á tjáningarformi tískunnar. Hún ræddi við blaðamann um fataskápinn, persónulegan stíl, að hunsa álit annarra og fleira fjör.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Tilraunakennd tísku­sýning í bílakjallara

Mörkin á milli tísku, myndlistar og gjörningalistar eiga það til að vera óljós og eitt listform flæðir gjarnan yfir í annað. Listamennirnir Þorleifur Thorlacius Þrastarson og Rökkvi Kárason hafa verið að leika sér að einmitt þessu í sköpun sinni og afhjúpuðu afraksturinn með allsherjar tískusýningu í bílakjallara Molans í Kópavogi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“

„Ég hef gaman af því þegar eitthvað sérstakt eða umdeilt kemur í tísku og setur Internetið alveg á hliðina,“ segir hin 21 árs gamla Snædís Baldursdóttir sem elskar tísku og hlakkar alltaf til að klæða sig upp. Hún starfar á leikskóla og sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla samhliða því að sinna fyrirsætustörfum í frítíma sínum. Í haust stefnir hún á lögfræðinám við Háskóla Íslands.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Heitast að vera að­eins of fín, alltaf

„Ég trúi ekki á tískubönn. Þú getur púllað nánast hvað sem er ef þú berð það með sjálfstrausti,“ segir 23 ára gamli fatahönnuðurinn Stella Michiko. Stella lýsir sér sem eilífum safnara og starfar sömuleiðis hjá tískuversluninni Aftur sem hún elskar. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá LHÍ í vor og tískan er órjúfanlegur hluti af hennar tilveru.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stór­brotinn stíll Zendayu

Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Geir­vörtur og latex vekja at­hygli í París

Tískuhúsið Schiaparelli er eitt það heitasta í dag og vekur alltaf hvað mesta athygli á tískuvikum víða um heim. Daniel Roseberry er listrænn stjórnandi merkisins og einkennist hönnun hans af gríðarlegri sköpunargleði og frumlegheitum sem hafa aldrei sést fyrr.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Osaka best klædd á Wimbledon

Tennisdrottningin Naomi Osaka fer alltaf eigin leiðir í tískunni og ber af hvert sem hún fer, þá sérstaklega þegar hún hitar upp fyrir tennisleiki. Þessi tískubrautryðjandi er þekkt fyrir tískuáhættu og klæðin hennar segja alltaf skemmtilega sögu.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Krýndur tískukóngur fót­boltans

Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur spilað sig inn í hjörtu margra fótboltaunnenda og eru fáir leikmenn sem hafa vakið jafn mikla athygli á HM í ár, sérstaklega ef marka má samfélagsmiðilinn TikTok. Hann er ekki bara stjarna í fótboltanum því hann virðist vera einn sá vinsælasti hjá tískuheiminum líka.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ó­kunnug mamma ekki sátt með kaupin

„Mamma stelpunnar tók á móti mér, hringdi í dóttur sína og var ekkert rosalega ánægð,“ segir hin 23 ára gamla Elísabet Krista um ógleymanleg kaup á uppáhalds flíkinni sinni. Krista, eins og hún er oftast kölluð, er nýútskrifuð úr viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, starfar sem flugfreyja og er mikil tískuáhugakona en hún ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn og fleira.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Synir Britney gengu tískupallinn í París

Jayden James og Sean Preston, synir hinnar heimsfrægu söngkonu Britney Spears, vöktu athygli og lukku á tískuvikunni í París á dögunum þegar þeir gengu tískupallinn fyrir hátískuhönnuði. Strákarnir, sem eru nítján og tuttugu ára gamlir, eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Kjóllinn markaði nýtt upp­haf í mínu lífi“

„Lífið er alltof stutt til að klæða sig ekki upp,“ segir hin 33 ára fjölhæfa tískudrottning Telma Fanney. Telma er meistaranemi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík og samhliða náminu starfar hún sem hóptímaþjálfari í World Class og stuðningsráðgjafi á íbúðarkjarna. Hún er sömuleiðis mikill tískuunnandi og óhrædd við að skína skært.

Tíska og hönnun