Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Margrét McArthur Friðriksdóttir segist undirbúa kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu eftir að Landsréttur synjaði áfrýjunarbeiðni hennar í meiðyrðamáli. Innlent 6.10.2026 22:00
Skakkur á stolnum strætó Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela strætisvagni og aka honum undir áhrifum kannabiss í mars síðastliðnum. Innlent 5.10.2026 14:44
Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi. Innlent 5.10.2026 11:12
Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara á Kársnesi í nóvember 2025, var sagður hafa verið í uppnámi þegar vitni við aðalmeðferð málsins sagði honum frá andlátinu. Hinn látni hafði neytt kókaíns áður en hann lést. Innlent 1. október 2026 11:33
Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir manndráp af gáleysi, með því að verða valdur að banaslysi á Suðurlandsvegi við Vík í júní. Aðstandendur hins látna krefja manninn um tæplega fimmtíu milljónir króna í skaða- og miskabætur. Innlent 30. september 2026 15:03
Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Lögreglumenn sem komu að rannsókn á andláti á Kársnesi árið 2025 gáfu skýrslu við aðalmeðferð málsins. Fyrir slysni var sýnd mynd af líki hins látna. Innlent 30. september 2026 10:54
Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn. Innlent 30. september 2026 10:31
Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Karlmaður var í dag dæmdur í nítján mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki var ævilöng svipting hans á ökuréttindum áréttuð en áður hefur maðurinn gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum sex sinnum. Innlent 29. september 2026 23:33
Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu. Innlent 29. september 2026 21:21
Hló að svari sambýliskonunnar Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað. Innlent 29. september 2026 16:17
Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Konur sem voru nánar hinum látna í meintu manndrápsmáli á Kársnesi gáfu skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Þær lýstu því þegar þær komu að hinum látna þar sem hann lá á jörðinni á heimili sínu. Innlent 29. september 2026 14:29
Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Skiptastjórar þrotabús flugfélagsins Play hafa höfðað mál á hendur flugvélaleigusala félagsins fallna og Einari Erni Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra og eins eigenda félagsins. Þess er krafist að greiðslum til flugvélaleigunnar verði rift og þrotabúinu verði dæmdar skaðabætur vegna þeirra. Viðskipti innlent 29. september 2026 12:08
Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Grískur karlmaður neitar því að hafa myrt portúgalskan karlmann í Kópavogi á síðasta ári. Farið var ítarlega yfir frásögn mannsins við aðalmeðferð málsins og sönnunargögn, þar á meðal eldhúshníf, skóför og götótta hettupeysu. Innlent 29. september 2026 11:34
Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Aðalmeðferð er hafin í máli grísks karlmanns sem er ákærður fyrir að drepa portúgalskan karlmann á Kársnesi í Kópavogi í nóvember. Hann er sagður hafa stungið og skorið fórnarlamb sitt á háls. Fórnarlambið er sagt hafa látist vegna meiriháttar blóðmissis. Innlent 29. september 2026 09:04
Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Yfirmaður leikjaupplifunar hjá bandaríska fyrirtækinu The New York Times var skotinn til bana í Kaliforníu en tengdaforeldrar hans eru grunaðir um morðið. Þau voru handtekin nærri vettvangi morðsins örfáum mínútum eftir að vitni heyrðu skothvelli og sáu mann falla til jarðar. Erlent 28. september 2026 23:37
Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Þekkt söngkona í Íran hefur verið fundin sek um birtingu „ruddalegs og ósæmilegs efnis“ og mun hún hljóta sjötíu og fjögur svipuhögg sem refsingu. Efnið var beint streymi frá tónleikum hennar í desember 2024 þar sem hún kom fram án þess að klæðast hijab og í ermalausum kjól. Henni verður einnig gert að yfirgefa heimaland sitt í tvö ár. Erlent 28. september 2026 20:54
Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga ólögráða stúlku í bíl á Seltjarnarnesi í nóvember í fyrra. Innlent 28. september 2026 15:42
Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Karlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað framið fjársvik í verslunum með því að skanna rangt strikamerki í sjálfsafgreiðslu og greiða þannig minna fyrir vörur en þær kostuðu. Innlent 28. september 2026 12:20
Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Tónlistarmanninum Elvari Orra er stefnt fyrir að hafa notað hljóðbút í upphafi lagsins „Miklu betri einn“ þar sem heyra má í tveimur stelpum sem rífast hástöfum. Þá krefst stefnandinn í málinu þess að fá miskabætur frá rapparanum. Lífið 27. september 2026 20:46
Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Par var dæmt í átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á rúmum átján kílóum af kókaíni til landsins í maí síðastliðnum. Fíkniefnin voru flutt til landsins frá Frankfurt í Þýskalandi í tveimur farangurstöskum sínum. Annað þeirra sagist hafa keypt töskurnar notaðar og að þau hafi ekkert vitað um efnin í þeim. Innlent 26. september 2026 11:55
Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Landsréttur hefur staðfest sýknudóm yfir starfsmanni leikskóla í Reykjavík sem var ákærður fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum eftir að hafa gripið harkalega í öxl drengs á leikskólalóðinni. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður talið sannað að starfsmaðurinn hefði valdið drengnum áverkum en ekki að háttsemi hans hefði verið refsiverð. Innlent 25. september 2026 21:14
Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri stjúpsystur sinni á árunum 2014 og 2015. Maðurinn er meðal annars sakaður um að hafa nauðgað stúlkunni í fjölskylduferð og síðar á heimili sínu. Innlent 25. september 2026 19:43
Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir í garð manns í ágúst árið 2023. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa troðið járnröri inn í endaþarm mannsins og svo stungið því í munn hans. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa tekið athæfið upp á myndskeið og deilt því í spjallhópinn „Fótbolti á Boys“ á samfélagsmiðlinum Snapchat. Innlent 25. september 2026 14:39
Fimm ára dómur Norberts staðfestur Karlmaður að nafni Norbert Walicki hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir tilraun til manndráps, með því að skera mann á háls með eldhúshnífi. Árásin átti sér stað á gistiheimili í Kópavogi í júní 2023. Innlent 25. september 2026 10:29