Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. september 2026 14:29 Georgios Ntentes er ákærður fyrir að myrða mann á Kársnesi í nóvember 2025. Vísir/Anton Brink Konur sem voru nánar hinum látna í meintu manndrápsmáli á Kársnesi gáfu skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Þær lýstu því þegar þær komu að hinum látna þar sem hann lá á jörðinni á heimili sínu.
Aðalmeðferð er hafin í meintu manndrápsmáli á Kársnesi í nóvember 2025. Georgios Ntentes, grískur karlmaður í kringum þrítugt, er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martins Zingara. Fyrrverandi kærasta Zingara var sú fyrsta sem kom á vettvang sunnudaginn eftir andlátið. Hún gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað. Öll ljósin voru kveikt og þegar hún hringdi í hann heyrði hún símann hringja en enginn svaraði. Eftir að hún kíkti í gegnum filmu á rúðunni og sá að Zingara lá á jörðinni hringdi hún í systur hans. Systir hins látna gaf einnig skýrslu fyrir dómi. „Svo þegar ég kíkti inn um gluggann og þá sá ég bróður minn. Nágranninn var að moka snjó og af því að ég gat ekki opnað gluggann bað ég nágrannann um að gera það,“ sagði systirin. Hún brast í grát aðspurð hvort hún hefði farið inn í íbúðina og segist hafa opnað dyrnar og séð hann á gólfinu. „Eini hluturinn sem mig langar að vita er hvort að þetta hafi verið sárt fyrir hann.“ Þau systkinin hafi verið mjög náin og talað mikið saman um líf sitt. Að hennar sögn hafi hann ekki verið þunglyndur og ekki verið með neinar sjálfsvígshugsanir. „Við vorum mjög náin, ég fór oft heim til hans og hann til mín.“ Rifrildi og sambandsslit Zingara hafði hins vegar átt í rifrildi við kærustu sína og rifust þau oft samkvæmt systur hans. Ntantes sagði í sinni skýrslu að brotaþoli hefði verið að ganga í gegnum sambandsslit og því liðið afar illa umrætt kvöld. Systirin vildi ekki meina að þau hefðu hætt saman heldur rifust þau oft án þess að það kæmi til sambandsslita. Móðir Zingara kom einnig fyrir dómara en hún var í Portúgal á þessum tíma. Hún sagðist hafa rætt við son sinn þennan dag í síma og hann hafi tjáð móður sinni að sambandi hans og kærustunnar væri lokið. „Hann fann út að hún væri komin með annan mann úti. Hann fór til hennar að tala um það og þá byrjuðu þau að rífast,“ sagði móðirin. Ntantes neitar allri sök.Vísir/Anton Brink Fyrrverandi kærastan var einnig spurð út í sambandsslitin. „Við vorum að fara að hætta saman en það þýðir ekki að við myndum ekki ná að laga það,“ sagði hún. Ætlað að innheimta peninga Zingara á að hafa sagt systur sinni að hann væri að fara föstudaginn 28. nóvember heim til Ntentes til að innheimta peninga. Fyrrverandi kærastan tekur undir að Ntentes hafi verið einn af nokkrum sem skulduðu Zingara peninga. Ntentes hafi fengið lánaðan pening, yfir hundrað þúsund krónur, og enn ekki greitt Zingara aftur. Ntentes var síðan ekki heima og hafi sagst ætla að koma heim til Zingara og greiða honum peninginn. Systirin var ekki viss hver fjárhagsstaða bróður hennar var en tók fram að hann fengi greitt frá Vinnumálastofnun og þyrfti ekki að greiða leigu fyrir íbúðina þar sem hann væri að taka íbúðina í gegn. Hún vissi að bróðir hennar neytti fíkniefna á við kókaín en töluvert magn fannst í íbúð hans. Hún hafði aldrei spurt hann hins vegar hvort hann væri fíkniefnasali. Allar nýttu þær sér aðstoð túlks við að gefa skýrslu.
Dómsmál Kópavogur Manndráp á Skjólbraut í Kópavogi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira