Framlengja samninga út næsta ár Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2026 23:04 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins. Vísir Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld. „
Ég held að allir átti sig á mikilvægi þess að það er ávinningur allra að kjarasamningar haldi lífi í stað átaka, sem kæmu upp á sama tíma og atvinnuleysi eykst og það þrengir að sökum hækkandi verðbólgu og vaxtastigs,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í samtali við Vísi. Fyrst var sagt frá samkomulaginu á vef Mbl. Vilhjálmur segir að sveitarfélögin séu með í því að halda aftur af verðlagi eins og kostur er. Það sama eigi við aðildarfyrirtæki SA. Hann segir að aðgerðapakki stjórnvalda sem kynntur var fyrir hópnum í dag sé þar að auki mjög álitlegur. „Hann hjálpar til við að láta þetta verða að veruleika,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að til standi að leggja fram frumvörp um að gera mörg réttindamál sem barist hafi verið fyrir að lögum. Eitt slíkt snúist um févíti, það þegar atvinnuveitandi brjóti á launamanni, og að leggja eigi viðurlög við því. Annað snúi að tómlæti og því að launafólk tapi ekki réttindum sínum á grunni þess. Þá standi til að hækka barnabætur og annað sem skiptir fólk máli. „Við erum mjög ánægð að geta sagt að okkur tókst að ganga frá því að kjarasamningum verði ekki sagt upp og að það verði ekki verkföll og átök.“ Samninganefndir VR, LÍV og fagfélaganna funduðu með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins í kvöld og verður viðræðum framhaldið á morgun. Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Frestur til uppsagnar rennur út síðdegis á fimmtudaginn. Fer yfir samkomulagið Vilhjálmur fór yfir samkomulagið á Facebooksíðu sinni. Þar nefnir hann þó nokkra punkta sem leiddu til framlengingarinnar. Hann segir að ríkið muni halda hækkunum krónutölugjalda sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs innan 2,5 prósenta á næsta ári. Fyrirtæki í ríkiseigu og innan SA verði hvött til hins sama. Þá muni Samband íslenskra sveitarfélaga hvetja forsvarsmenn sveitarfélaga til að halda hækkunum gjaldskráa einnig innan 2,5 prósenta. Í færslu Vilhjálms segir einnig að fari ársverðbólga yfir fjögur prósent í lok október 2027 verði greiddar sérstakar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028. Þær bætur verði samtals tveir milljarðar króna og þrír milljarðar ef verðbólgan fer yfir fimm prósent. „Morgunljóst er að við náum aðeins árangri ef ríkið, sveitarfélögin og fyrirtækin axla ábyrgð með launafólki. Markmiðið er að ná tökum á verðbólgunni og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.“
Kjaramál Stéttarfélög Vinnumarkaður Verðlag Tengdar fréttir Bíði og bíði eftir Bjarna Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13. 6. október 2026 16:32 Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. 6. október 2026 12:11 Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 5. október 2026 21:30 Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. 5. október 2026 19:46 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira
Bíði og bíði eftir Bjarna Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13. 6. október 2026 16:32
Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. 6. október 2026 12:11
Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 5. október 2026 21:30
Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. 5. október 2026 19:46