Vinnumarkaður
1 2 3 4 5 6 … 120 ›
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 12:09
Óbreyttur tónn bankans og vonir um frið á vinnumarkaði lækkar markaðsvexti Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda vöxtum óbreyttum, stutt af öllum nefndarmönnum, var viðbúin og engar breytingar voru gerðar á framsýnni leiðsögn hennar. Skömmu áður hafði náðst samkomulag hjá stórum hluta launþegahreyfingarinnar við SA um að slíta ekki kjarasamningum og hafa skuldabréfafjárfestar tekið vel í þær fréttir og markaðsvextir óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað. Innherji 7.10.2026 10:25
Fundur VR og SA hafinn Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir. Innlent 7.10.2026 09:45
Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst. Innlent 7.10.2026 08:08
Framlengja samninga út næsta ár Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld. Innlent 6.10.2026 23:04
Segja boltann hjá stjórnvöldum Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði. Innlent 6.10.2026 21:27
Bíði og bíði eftir Bjarna Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13. Innlent 6.10.2026 16:32
Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. Innlent 6.10.2026 12:11
Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. Innlent 5.10.2026 21:30
Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. Innlent 5.10.2026 19:46
Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess. Innlent 5.10.2026 18:13
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. Innlent 5.10.2026 13:34
Tæplega þrjátíu sagt upp Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:49
Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:26
Vaxandi verðbólguáhyggjur en vaxtahækkun kæmi „nokkuð á óvart“ Þótt verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun og rök séu fyrir því að Seðlabankinn herði taumhaldið enn frekar telja greinendur IFS líklegast að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreytum í næstu viku. Hagkerfið er í hægagangi, raunvextir áfram háir og óvissa á vinnumarkaði mikil, en ekki er útilokað að gripið verði til einnar vaxtahækkunar til viðbótar síðar á árinu. Innherji 3.10.2026 13:31
Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. Innlent 2.10.2026 16:29
181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Alls bárust Vinnumálastofnun sex tilkynningar um hópuppsagnir í nýliðnum september, þar sem 181 starfsmanni var sagt upp störfum. Viðskipti innlent 2.10.2026 13:04
Uppsagnir hjá Klettabæ Klettabær, sértækt búsetuúrræði til langs- og skamms tíma, hefur sagt upp 28 starfsmönnum. Breytingarnar tengjast því að einhverjir skjólstæðingar eru á leið í önnur úrræði. Framkvæmdastjórinn segir þetta þungbært skref. Innlent 1.10.2026 15:52
Kristrún tilbúin í aðgerðir Kristrún Frostadóttir segir ríkisstjórnina reiðubúna til að tamarka hækkanir á krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent ef allir geri sitt og kjarasamningar halda. Þetta tilkynnti hún í ræðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Innlent 1.10.2026 15:33
Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Einungis vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti kjarasamninga og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að væntingar séu um útspil frá stjórnvöldum er varðar gjaldskrárhækkanir. Ekkert svigrúm sé í raun til staðar og tvísýnt með framhaldið. Formaður VR segist ekki bjartsýn. Innlent 1.10.2026 13:31
Óttast „harða lendingu“ með efnahagssamdrætti og verulegu atvinnuleysi Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“. Innherji 1.10.2026 10:53
Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Vegna tilfærslu á ábyrgð heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hefur öllum 76 heilbrigðisfulltrúum landsins verið sagt upp. Þeir hafa fengið loforð um endurráðningu en ekki er búið að bjóða neinum nýtt starf hjá stofnununum sem taka við eftirlitinu. Innlent 30.9.2026 15:57
Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því. Innlent 30.9.2026 15:36
„Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Formaður Starfsgreinasambandsins furðar sig á þeim orðum fjármálaráðherra að launafólk hafi það ekki verra nú en áður og að heimilin standi vel. Einn aðili hafi skilað auðu í því verkefni að láta kjarasamninga halda og það sé ríkið. Innlent 30.9.2026 13:02
Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Kjarasamningar voru gerðir á sínum tíma með ákveðnum forsendum. Launafólk tók þá meðvitaða áhættu að ganga til hóflegra launahækkana á sama tíma og verðbólga var mikil og óvissa mikil um þróun vaxta og verðlags. Í staðinn átti að skapa sameiginlegan ramma þar sem launafólk, atvinnurekendur og opinberir aðilar legðu sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Skoðun 30.9.2026 11:33
September án niðurstöðu Snemma í mars sl. varð ljóst að forsendur kjarasamninga væru ekki eins líklegar til að halda og almennt hafði verið talið. Verðbólga var á uppleið. Gjaldskrár hins opinbera höfðu hækkað, verðhækkanir fyrirtækja voru svo gott sem daglegt brauð og ekkert bólaði á langþráðri tiltekt í húsnæðismálum, sem eru stærsti orsakavaldur verðbólgunnar. Skoðun 30.9.2026 07:30
Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. Innlent 30.9.2026 06:46
Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Forstjóri Vinnumálastofnunar segir hápunkti atvinnuleysis ekki hafa verið náð en staðan á vinnumarkaði komi þó ekki á óvart. Árstíðabundin sveifla sé meiri núna en síðustu ár en fjöldi þeirra sem sagt hafi verið upp verði ekki ljós fyrr en eftir mánaðamót. Viðskipti innlent 29.9.2026 12:56
Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Öllum starfsmönnum Netapp á Íslandi hefur verið sagt upp en Vísir greindi frá því upphafi mánaðarins að starfsemi fyrirtækisins hér á landi væri í uppnámi og óvissa um störf. Sjötíu og fimm starfsmenn störfuðu á skrifstofu Netapp á Íslandi. Viðskipti innlent 29.9.2026 10:58
Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri. Viðskipti innlent 28.9.2026 19:58