SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 5. október 2026 13:34 Jakob Tryggvason er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Vísir/Sigurjón Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif.
Klukkan 17:30 í dag munu trúnaðarmenn og fulltrúar í samninganefndum Fagfélaganna hittast og greiða atkvæði um það hvort kjarasamningum skuli sagt upp. Á sama tíma munu trúnaðarráð VR og stjórn félagsins taka afstöðu til sama máls. Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambandsins, sem er stærsta félagið innan Fagfélaganna, segir að samtalið við ríki og sveitarfélög hafi gengið vel síðustu daga. Aðra sögu sé að segja af Samtökum atvinnulífsins. „Samningsaðilar okkar, Samtök atvinnulífsins, hafa algjörlega skilað auðu. Og bara að óbreyttu þá veit ég ekki hvernig við eigum að eiga möguleika á öðru heldur en að segja upp samningum nema þeir komi með eitthvað að borðinu.“ Samtök atvinnulífsins hafa sagt að launahækkanir, umfram þær sem samið var um í síðustu kjarasamningum, komi ekki til greina. Aðspurður hvað samtökin gætu komið með að borðinu annað en launahækkanir til að liðka fyrir samtalinu segir Jakob að það séu ýmsar leiðir til að vinna sig úr stöðunni. „Það hefur ekki komið neitt frá þeim. Ef við hefðum eitthvað á borðinu til þess að vinna með þá væri örugglega hægt að finna einhverja lausn á þessu. Það er alveg örugglega hægt að finna einhvers staðar sameiginlega niðurstöðu ef Samtök atvinnulífsins opna á samtalið. Hingað til höfum við bara haft þá tilfinningu að þeir séu á einhverri annarri vegferð en að þessir kjarasamningar eiga að gilda áfram.“ Jakob segir að hljóðið í félagsmönnum sé þungt og telur að félagsmenn sjái þá eina leið færa að slíta samningum í kvöld. Hvað heldur þú að gerist ef það verður niðurstaðan? Hvað heldur þú að gerist í kjölfarið? Heldurðu að það verði svona einhvers konar dómínóáhrif, heldurðu að önnur félög fylgi í kjölfarið? „Augljóslega og bara innan okkar raða, við erum með mjög marga samninga. Þetta hefur áhrif á um 15 samninga innan Rafiðnaðarsambandsins og fleiri samninga innan fagfélaganna. Þetta virkjar uppsagnarákvæði í samningum við opinbera geirann líka, ríki og sveitarfélög, þannig að þetta hefur því miður mjög víðtæk áhrif.“
Kjaramál Stéttarfélög Atvinnurekendur Vinnumarkaður Tengdar fréttir Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. 2. október 2026 16:29 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira
Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. 2. október 2026 16:29