Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Atli Ísleifsson skrifar 7. október 2026 06:47 Leigjandinn sagði að dekkin hefðu verið staðsett beint fyrir framan bíl í stæði hans í bílageymslu hússins. Myndin er úr safni. Getty Félag sem leigir háskólanema stúdentaíbúð hefur verið gert að greiða leigjanda sínum 300 þúsund krónur eftir að átta bíldekk í eigu hans voru fjarlægð úr bílageymslu og þeim fargað.
Þetta er niðurstaða kærunefndar húsamála. Í úrskurðinum kemur fram að leigjandinn hafi verið á leið í skólann að morgni 8. janúar síðastliðins þegar hann hafi séð miða á dekkjunum þar sem sagði að dekkin mættu ekki vera í bílageymslunni og að nauðsynlegt væri að fjarlægja þau. Þar sem leigjandinn hafi ekki viljað verða of seinn í kennslustund hafi hann ákveðið að koma dekkjunum annað í geymslu eftir skóla, en þegar hann sneri aftur úr skólanum í lok dags hafi verið búið að fjarlægja dekkin. Segir að þau hafi verið átta talsins – tveir umgangar – og samtals 300 þúsund króna virði. Leigjandinn hafi þá sent tölvupóst á félagið, leigusalann, sem hafi svo svarað degi síðar að búið væri að farga dekkjunum. Ástæðan hafi verið sú að brunahætta stafaði af dekkjunum og þau væru bönnuð í byggingunni. Leigjandinn hafi ekki brugðist við viðvörun á miða sem hafi verið límdur á dekkin 7. janúar og því hafi þeim verið fargað. Beint fyrir framan bílinn Leigjandinn sagði að dekkin hefðu verið staðsett beint fyrir framan bíl í stæði hans í bílageymslu hússins. Þannig hafi verið augljóst bæði hver væri eigandi þeirra og að þau hefðu ekki verið skilin eftir. Enn fremur segir að á viðvöruninni sem hafi verið sett á dekkin í lok dags 7. janúar hafi ekki verið tilgreindur sérstakur frestur eða sérstök hætta tilgreind. Því hafi leigjandinn talið sjálfsagt að fara með dekkin innan dags 8. janúar, sem væri innan eins sólarhrings frá því viðvörun hafi verið sett á þau. Leigjandinn taldi að með þessu hefði tilkynningarskylda ekki verið nægilega uppfyllt og meðalhófs ekki verið gætt í framkvæmdinni. Of skammur tími hefði liðið frá því viðvörun hefði verið sett á dekkin þar til þau hefðu verið fjarlægð. Því hefði um gróft brot gegn eignarrétti leigjandans verið að ræða. Sammála leigjandanum Kærunefndin var sammála rökstuðningi leigjandans og að félaginu hefði ekki verið heimilt að farga dekkjunum og sömuleiðis hefði félagið ekki mótmælt orðum leigjandans um að dekkin hefðu verið 300 þúsund króna virði. Félagið væri því talið bera skaðabótaábyrgð á tjóni leigjandans og bæri að greiða honum umrædda upphæð, það er 300 þúsund krónur.
Úrskurðar- og kærunefndir Málefni fjölbýlishúsa Hagsmunir stúdenta Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira