Innlent

Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Davíð segir að í orðum Marco Rubio hafi falist jákvæð skilaboð til Íslendinga.
Davíð segir að í orðum Marco Rubio hafi falist jákvæð skilaboð til Íslendinga. Vísir/Anton Brink/Varðberg

Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland.

Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, segir skilaboð Rubio til okkar Íslendinga hafa verið góð.

„Þetta voru tvíþætt skilaboð. Annars vegar að Bandaríkin eru að staðfesta varnarskuldbindingar sínar gagnvart Íslandi á tímum þegar mörg Evrópuríkin hafa verið að draga það í efa hversu traust Bandaríkin eru í varnarsamningnum,“ sagði Davíð í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Hins vegar hafi Rubio boðið nánara samstarf og hugsanlega aukna viðveru hér á landi en þá í samstarfi við Íslendinga.

Breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland

Davíð segir að viðvera Bandaríkjanna í Evrópu sé þó að breytast.

„Þeir eru að draga úr viðveru í Evrópu og það er viðbúið, þeir hafa kynnt það með talsvert löngum fyrirvara. Þannig að NATO er að breytast. Bandaríkjamenn hafa talað um NATO 3.0 og svolítið breytt NATO en það á ekki að hafa áhrif á okkur Íslendinga.“

Hann segir að mikilvægt sé að benda á hversu góð samskipti Íslands og Bandaríkjanna séu. Fundur Rubio hafi staðfest sameiginlega hagsmuni þjóðanna og orð Rubio um viðskiptatengsl og sérfræðiþekkingu Íslands hafi verið góð fyrir íslenskt atvinnulíf.

Þó hafi ákveðin skilaboð komið fram sem skipti máli í íslenskri stjórnmálaumræðu.

„Fríverslunarsamningur við Bandaríkin er ekki á dagskrá, tími fríverslunarsamninga að þeirra mati er liðinn. Við Íslendingar trúum því ekki en þeir trúa því, þannig að það er á borðinu.“

Færslur Trump hafi ekki hjálpað

Á fundinum í gær vildi Rubio ekkert ræða kortið fræga sem Donald Trump forseti birti á samfélagsmiðli sínum Truth Social.

Kortið sýndi Ísland sveipað bandarísku fánalitunum og vakti nokkuð hörð viðbrögð hér á landi og meðal annars kallaði Þorgerður Katrín sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund.

„Margir af þessum póstum Trump hafa ekki hjálpað til í samskiptum og mér og flestum Íslendingum hefur verið brugðið stundum þegar við sjáum pósta poppa upp frá forseta Bandaríkjanna. En utanríkisráðherra segir málið frá og nú horfa menn til framtíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×