Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Smári Jökull Jónsson skrifar 7. október 2026 13:31 Davíð segir að í orðum Marco Rubio hafi falist jákvæð skilaboð til Íslendinga. Vísir/Anton Brink/Varðberg Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland.
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, segir skilaboð Rubio til okkar Íslendinga hafa verið góð. „Þetta voru tvíþætt skilaboð. Annars vegar að Bandaríkin eru að staðfesta varnarskuldbindingar sínar gagnvart Íslandi á tímum þegar mörg Evrópuríkin hafa verið að draga það í efa hversu traust Bandaríkin eru í varnarsamningnum,“ sagði Davíð í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hins vegar hafi Rubio boðið nánara samstarf og hugsanlega aukna viðveru hér á landi en þá í samstarfi við Íslendinga. Breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland Davíð segir að viðvera Bandaríkjanna í Evrópu sé þó að breytast. „Þeir eru að draga úr viðveru í Evrópu og það er viðbúið, þeir hafa kynnt það með talsvert löngum fyrirvara. Þannig að NATO er að breytast. Bandaríkjamenn hafa talað um NATO 3.0 og svolítið breytt NATO en það á ekki að hafa áhrif á okkur Íslendinga.“ Hann segir að mikilvægt sé að benda á hversu góð samskipti Íslands og Bandaríkjanna séu. Fundur Rubio hafi staðfest sameiginlega hagsmuni þjóðanna og orð Rubio um viðskiptatengsl og sérfræðiþekkingu Íslands hafi verið góð fyrir íslenskt atvinnulíf. Þó hafi ákveðin skilaboð komið fram sem skipti máli í íslenskri stjórnmálaumræðu. „Fríverslunarsamningur við Bandaríkin er ekki á dagskrá, tími fríverslunarsamninga að þeirra mati er liðinn. Við Íslendingar trúum því ekki en þeir trúa því, þannig að það er á borðinu.“ Færslur Trump hafi ekki hjálpað Á fundinum í gær vildi Rubio ekkert ræða kortið fræga sem Donald Trump forseti birti á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Kortið sýndi Ísland sveipað bandarísku fánalitunum og vakti nokkuð hörð viðbrögð hér á landi og meðal annars kallaði Þorgerður Katrín sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund. „Margir af þessum póstum Trump hafa ekki hjálpað til í samskiptum og mér og flestum Íslendingum hefur verið brugðið stundum þegar við sjáum pósta poppa upp frá forseta Bandaríkjanna. En utanríkisráðherra segir málið frá og nú horfa menn til framtíðar.
Heimsókn Marco Rubio til Íslands Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Bandaríkin Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira