Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 7. október 2026 08:02 Thomas Møller Olsen mætir fyrir Landsrétt, þar sem 19 ára fangelsisdómur yfir honum var staðfestur. Vísir/Vilhelm „Þegar maður fór að skoða hann alls staðar þar sem hann var og öll svona gögnin sem maður fær út úr einum síma og allt þetta, þá var ég þess alveg fullviss um að hann væri svona „predator“,“ segir Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður um Thomas Møller Olsen, sem dæmdur var fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur.
Leifur stýrði rannsókn málsins og tók allar skýrslur af Thomas eftir að hann var handtekinn um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq í janúar árið 2017. Í fyrsta þætti nýja hlaðvarpsins Önnur mál rifjar Leifur upp rannsóknina og lýsir meðal annars fyrstu dögunum, yfirheyrslunum og þeirri miklu pressu sem skapaðist á meðan þjóðin fylgdist með málinu nánast í rauntíma. Þetta er í fyrsta sinn sem hann ræðir málið opinberlega með þessum hætti. Önnur mál er nýr áskriftarþáttur í umsjón þeirra Nadine Guðrúnar Yaghi og Þórhildar Þorkelsdóttur, sem standa einnig að Eftirmálum. Þar verður meðal annars farið yfir lausa enda úr eldri málum, rætt við viðmælendur og fjallað um mál sem falla ekki endilega inn í hefðbundið form Eftirmála. Gríðarleg pressa Birna Brjánsdóttir var tvítug þegar hún hvarf eftir skemmtanahald í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt 14. janúar árið 2017. Hvarfið vakti strax mikla athygli og umfangsmikil leit hófst. Átta dögum síðar fannst lík Birnu við Selvogsvita. Leifur segir sjálfur að þetta sé í fyrsta skipti sem hann tali um málið með þessum hætti og að hann hafi í raun ekki áður verið spurður mikið um það.Hákon Sverris/Orca Films Thomas Møller Olsen, skipverji á Polar Nanoq, var síðar sakfelldur fyrir að hafa orðið henni að bana og dæmdur í nítján ára fangelsi. Leifur segir rannsóknina hafa verið óvenjulega að mörgu leyti, ekki síst vegna þess að Birna og Thomas þekktust ekkert. Í alvarlegum ofbeldismálum séu hins vegar yfirleitt einhver tengsl milli brotaþola og geranda. Þegar rannsóknin beindist að Polar Nanoq var Leifi upphaflega ætlað að fara með þyrlu út í togarann. Sérsveitin tók það verkefni hins vegar að sér og Leifur hófst handa við að undirbúa yfirheyrslur yfir þeim mönnum sem handteknir yrðu þegar skipið kæmi að bryggju. „Þetta urðu mér langir dagar. Ég held ég hafi ekkert farið heim í einhverja þrjá sólarhringa eða eitthvað svoleiðis.“ Hann lýsir stemningunni sem hálfgerðu „bíómyndamómenti“. Þjóðin fylgdist grannt með og þegar Polar Nanoq kom til hafnar var meðal annars sýnt beint frá komu skipsins. Það var gríðarleg pressa á að leysa málið. Leifur segir pressuna ekki aðeins hafa komið frá samfélaginu. Hún hafi einnig komið frá yfirmönnum og verið, að hans mati, óeðlileg á köflum. „Það skapaði ekki rétt andrúmsloft, skulum við segja. Það hafði ekki sérstaklega mikla hvatningu þar með sér allavega.“ Vissi að lögreglan var á eftir honum Í þættinum rifjar Leifur einnig upp að fjölmiðlamaður hafi haft samband við einn mannanna um borð í Polar Nanoq í gegnum Messenger og spurt hvort hann væri maðurinn sem lögregla leitaði að í tengslum við rauðan bíl sem hafði komið við sögu í rannsókninni. Þar með hafi viðkomandi vitað að lögregla væri farin að beina sjónum sínum að skipinu. Skipstjórinn hafði einnig fylgst með fréttum og fengið fyrirspurnir um staðsetningu skipsins og tók að lokum ákvörðun um að snúa við. Aðspurður í Öðrum málum hvort þetta hafi hugsanlega gefið Thomas tækifæri til að losa sig við sönnunargögn segir Leifur svo vera. Hann tekur þó skýrt fram að ekki sé hægt að fullyrða hvað gerðist. „En svona farandi yfir myndefnið seinna meir þá er það langlíklegast að það hafi farið þarna,“ segir Leifur og vísar meðal annars til fatnaðar. Vorkenndi sjálfum sér Leifur tók mjög margar skýrslur af Thomas eftir handtökuna. Thomas neitaði alla tíð sök. Aðspurður hvernig Thomas hafi komið honum fyrir sjónir segir Leifur hann hafa haft ríka tilhneigingu til að setja sig í stöðu fórnarlambs. „Alltaf beittur misrétti og lendir í einhverju. Hefur ekkert stjórn á því sjálfur og svona setur sig svolítið þar. Tekur ekki ábyrgð á því sem hann á.“ Þegar lögregla fór síðan að skoða ferðir Thomasar og gögn úr síma hans segir Leifur ákveðið mynstur hafa farið að birtast. Thomas hafi reglulega leigt sér bíl þegar skipið kom í land, meðal annars á Íslandi og í Danmörku. Að sögn Leifs var það óvenjulegt miðað við aðra skipverja. „Hann var alltaf að taka bíl og hafði til að mynda keyrt mikið um á Íslandi,“ segir Leifur. Thomas hafi því þekkt vel til hér á landi. Leifur segir hegðun hans í miðborg Reykjavíkur einnig hafa vakið athygli sína þegar rannsóknargögnin voru skoðuð. „Hann var ekki að skemmta sér, hann var að fylgjast með. Hann var að horfa, skanna svæðið,“ segir hann en aðspurður hvort hann telji að þar hafi verið um ákveðinn ásetning að ræða svarar Leifur. „Já, ég held það.“ Um tíma var einnig kannað hvort Thomas gæti tengst hvarfi ungrar konu í Danmörku þegar skipið var þar í slipp. Það var hins vegar útilokað þegar í ljós kom að Thomas hafði verið úti á sjó þegar konan hvarf. „Ég öskra ekki á neinn“ Í þættinum er Leifur spurður hvernig yfirheyrslur yfir manni sem grunaður er um jafn alvarlegt brot fari fram og hvort þær líkist því sem sjá má í kvikmyndum. „Ég öskra ekki á neinn,“ segir hann og bætir við að slíkt virki einfaldlega ekki. Yfirheyrslur snúist um upplýsingaöflun, að finna misræmi og bera frásögn viðkomandi saman við þau gögn sem þegar liggja fyrir. Leifur lýsir þessu sem miklu sálrænu stríði. „Ég þarf að selja þér sem sakborningi í málinu hjá mér að ég sé þinn besti kostur í stöðunni.“ Stundum geti jafnvel verið gagnlegt að leyfa sakborningi að ljúga. Ég afhendi þér skóflu og þú ákveður hvort þú mokar holu. Ef þú mokar holu þá get ég ýtt þér ofan í hana. Önnur stór mál Birnumálið er aðeins eitt þeirra mála sem Leifur ræðir í fyrsta þættinum af Öðrum málum. Hann fer einnig yfir mál þar sem móðir varð sex ára syni sínum að bana og reyndi að drepa eldri son sinn, segir frá erfiðasta hluta starfs rannsóknarlögreglumanns og ræðir hvernig alvarleg ofbeldisbrot hafa breyst hér á landi undanfarin ár. Síðar í þættinum er sjónum beint að Edition-málinu svokallaða og Katherine Mansell, tæplega þrítugri konu sem lést á hótelinu ásamt föður sínum. Þar er meðal annars farið yfir líf Katherine í Dyflinni, störf, áhugamál og síðustu stafrænu spor hennar fyrir Íslandsferðina. Þá eru gögn málsins skoðuð í samhengi við þá fullyrðingu móður hennar að Katherine hafi sjálf ákveðið að deyja með foreldrum sínum.
Hlaðvörp Morðið á Birnu Brjánsdóttur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira