Innlent

Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Formaður Eflingar segir glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 7. október 2026

Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að leggja nú mikla áherslu á launahækkanir. Hann viðurkennir þó að háir vextir geti aukið atvinnuleysi meira en nauðsynlegt sé. Þá telur hann leigubremsu ríkisstjórnarinnar geta gert illt verra. 

Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni hingað til lands, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna í varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland. 

Forstjóri Icelandia, sem rekur Flugrútuna, gagnrýnir að ríkið greiði rúma milljón króna á viku fyrir að taka við farþegum á nýrri stoppustöð við Keflavíkurflugvöll. Hann segir það auka samkeppni ríkisins við einkarekin ferðaþjónustufyrirtæki.

Ný bíómynd um keppnina á topp K2 að vetrarlagi og hinstu för John Snorra er ein vinsælasta kvikmynd í heimi um þessar mundir. Dóttir Johns Snorra sem tók þátt í kapphlaupinu segir föður sinn hafa verið hennar mesta fyrirmynd, fjölskylduvinur segir myndina skipta miklu máli fyrir arfleifð fjallgöngugarpsins.

Í sportinu er fjallað um jafntefli Íslands og Eistlands í Þjóðadeildinni í gær og Lionel Messi, sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×