Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. október 2026 19:46 Jakob Tryggvason er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Vísir/Sigurjón Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út.
Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að um öflugan fund hafi verið að ræða en alls sátu áttatíu manns fundinn. Fulltrúar stjórna innan félagsins, samninganefnd og trúnaðarmenn hafi setið fundinn. „Niðurstaðan er skýr. Við sóttum heimild til að segja upp kjarasamningum að óbreyttu. Engu að síður erum við mjög meðvituð um það að við viljum leita allra leiða til þess að komast að ásættanlegri niðurstöðu núna á næstu þremur dögum þangað til að fresturinn rennur út,“ segir Jakob. Atkvæðagreiðsla hafi farið fram á fundinum og allir áttatíu hafi greitt atkvæði með því að segja upp samningunum að öllu óbreyttu. „Þeir [Samtök atvinnulífsins] hafa ekkert opnað á neina efnislega vinnu. Þeir senda tilkynningar og taka svona kurteisisspjall en ekkert meira. Þannig að meðan það er þannig að þá erum við ekki í neinni annarri stöðu en að segja upp kjarasamningum. Sjá einnig: SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Mögulega stíga þeir út úr þægindarammanum og vinna svolítið með okkur og þá er hægt að gera eitthvað. En þeir þurfa að nálgast okkur,“ segir Jakob Eruð þið bjartsýn á að það breytist í millitíðinni? „Já maður er alltaf bjartsýnn. Stundum hefur þetta nú verið þannig að það byggist upp þrýstingur eitthvað gerist. En það getur brugðið til beggja vona.“ Hvað búist þið við að gerist í kjölfarið ef samningum verður sagt upp fimmtudag? Jakob segir mikið af samningum undir hjá Fagfélögunum og því verði það töluverður ferill að segja þeim upp verði af því. „Við vitum að það mun örugglega einhver véfengja það mál,“ segir Jakob. „En svo erum við bara að reyna átta okkur á þessari stöðu og hvort við erum þá að fara að krefjast nýs langtímasamnings eða gera skammtímasamninga.“
Kjaramál Vinnumarkaður Stéttarfélög Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira