Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. október 2026 21:30 Viðræðunefnd VR/LÍV fékk umboð til þess að segja upp kjarasamningum í kjölfar fundarins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fyrir miðju. Vísir/Áróra Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu.
Þetta er niðurstaða stjórnarfundar VR í kjölfar fundar með trúnaðarráði félagsins. Fyrr í kvöld veitti það stjórn VR, og jafnframt samninganefnd þess, óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum. Frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út síðdegis fimmtudaginn næstkomandi, 8. október. „Þetta var hörkufundur. Mikil mæting, málin rædd frá ólíkum hliðum, fólk skiptist á skoðunum en það var mjög afgerandi niðurstaða. Ég er með fullt umboð úr mínu félagi,“ segir Halla Gunnarsdóttir að loknum fundi. Hún segir að afgerandi niðurstaða hafi verið um að slíta kjarasamningum komi ekkert á móti frá Samtökum atvinnulífsins. Allir í stjórn VR hafi greitt atkvæði með því að segja samningunum upp að öllu óbreyttu. Félagið sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að Samtök atvinnulífsins hefðu ítrekað ekki sýnt viðleitni til þess að mæta stöðu launafólks vegna forsendubrests kjarasamninga. Hún segist vona að Samtök atvinnulífsins komi til móts við VR en þau eigi fund á morgun. Innan VR sé full samstaða til þess að „rjúfa þennan vítahring“ og áhersla sé lögð á að láta samningana halda. „Ég held að það væri mikið óráð af Samtökum atvinnulífsins að láta þá [kjarasamninga] springa í loft upp út af ekki stærra ágreiningsmáli en þessu.“ Er einhver von á að afstaða beggja aðila breytist á fundinum á morgun? „Já, ég bara vona það. Það sem auðvitað reynir á í svona samningaviðræðum er að leyfa sér að hugsa í lausnum og að opna á lausnir sem eru kannski ekki beint fyrir framan nefið á þér akkúrat þegar þú byrjar. Við erum tilbúin til að gera það.“ Nú eru þrír sólarhringar til stefnu þangað til frestur til að segja upp samningum rennur út. Halla segist sannfærð um að lausnin sé til en hins vegar sé alveg skýrt að ef það eigi að „þvinga okkur áfram inn í launalækkanir“ sjái félagið sér ekki fært annað en að segja samningunum upp.
Kjaramál Vinnumarkaður Stéttarfélög Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira