Erlent

Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl

Agnar Már Másson skrifar
Öllum íþróttaviðburðum á Stryker-svæðinu hefur verið frestað í dag.
Öllum íþróttaviðburðum á Stryker-svæðinu hefur verið frestað í dag. Facebook/Bæjarstjóri Wichita

Eitt barn og einn fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll í Wichita í Kansasríki í Bandaríkjunum. Fjöldi særðist.

Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninum. Hann segir að meðal látinna sé eitt barn og einn fullorðinn en nöfn þeirra hafa ekki verið gerð opinber.

Auk ökumannsins eru tvö ungmenni sögð hafa verið í bílnum þegar honum var ekið inn á knattspyrnuvöllinn á Stryker-íþróttasvæðinu í Wichita um klukkan 15.25 að staðartíma (20.25 að íslenskum tíma).

Moses sagði að um „harmleik“ væri að ræða.

Fjöldi fjölskyldna og barna var á vellinum þegar atvikið átti sér stað, að því er vitni segja við KWCH. Einn viðstaddra sagðist hafa verið með fjölskyldu sinni þegar hann sá svartan pallbíl sem var ekið upp á vegkant og svo inn á völlinn. Tvö vitni segjast hafa heyrt mikinn hávaða þegar atvikið átti sér stað.

Lögregla var með mikinn viðbúnað og voru tugir lögreglubíla á svæðinu, að sögn KWCH. Yfirvöld vinna nú að því að hafa samband við aðstandendur, að sögn Moses, en lögreglan hyggst enn ekki gefa út aldur fórnarlambanna strax. Búist er við blaðamannafundi um málið síðar í kvöld, að sögn KWCH.

Öllum íþróttaviðburðum sem stóð til að halda á Stryker í dag hefur verið aflýst. Lily Wu bæjarstjóri skrifar í Facebook-færslu að hún sé slegin yfir atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×