Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Agnar Már Másson skrifar 17. október 2026 19:19 Mótmælandi handtekinn á gagnmótmælum á vegum Milo og fleiri samtaka. EÐA/Steven Knap Danska lögreglan handtók í dag átta manns í tengslum við mótmæli víða um Kaupmannahöfn. Annars vegar hélt hægrisinnaða grasrótarhreyfingin „Danska þjóðin“ mótmæli þar sem farið var fram á fjöldabrottvísanir. Hins vegar héldu samtökin Mino Danmark, baráttusamtök fyrir innflytjendur, auk fleiri samtaka gagnmótmæli undir yfirskriftinni „Nei við endurflutningum - mótmæli gegn rasisma“. Stimpingar urðu milli fylkinga að mótmælunum loknum.
Jakob Hansen aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kaupmannahöfn segir við danska ríkisútvarpið að lögreglumenn hafi handtekið tvo hvorn í sínum mótmælum við Kóngsins nýjatorg. „Þeir urðu svo ósammála um eitthvað að lögreglan neyddist til þess að skerast í leikinn,“ er haft eftir Hansen sem bætir við að lögreglan skoði nú fyrir hvað eigi að ákæra mennina. Annar maður var síðan handtekinn á mótmælum þar sem hann neitaði að segja til nafns. Mótmælunum lauk um klukkan 17 að dönskum tíma en óeirðir brutust þá út við Hábrúartorg þar sem fimm voru handteknir. Af gagnmótmælum við Thorvaldsens-torg í Kaupmannahöfn. Mótmælin eru haldin til höfuðs mótmælum samtakanna „Dönsku þjóðarinnar“ (d. Det Danske Folk).EPA/STEVEN KNAP „Það voru nokkrir sem ætluðu sér að eiga í einhverjum átökum hið hina hliðina,“ sagði lögregluþjónninn. Í því samhengi hafi lögreglumenn verið nauðbeygðir til þess að beita valdi, nánar tiltekið kylfum. „Við höfðum einnig hunda með okkur,“ bætti hann við en kvaðst ekki geta gefið upp frekari upplýsingar um hina handteknu eða hvorri fylkingu þeir tilheyrðu. Fyrir mótmælin hafði „Danska þjóðin“ gefið það út að öllum þeim hópum sem myndu mæta í einkennisfatnaði eða alveg svartklæddir yrði vísað á brott. Þetta gerist í kjölfar þess að hópar í einkennisfatnaði hleyptu upp síðustu mótmælum samtakanna í byrjun september og heisluðu þar að sið nasista. „Það er kominn tími á að taka til í Danmörku. Við verðum að gera Danmörku danska á ný. Hún er það svo sannarlega ekki lengur,“ sagði einn skipuleggjenda úr röðum Dönsku þjóðarinnar í samtali við DR í dag. Hann hélt á stórum dönskum fána rétt eins og margir aðrir á mótmælunum. Skipuleggjandi gagnmótmælanna við Kónsins nýjatorg ræddi einnig við DR: „Við höfum fengið þúsundir manns út á götu til að sýna þeim [„Dönsku þjóðinni“] að endurflutningamótmælin séu ekki velkomin hér og að sú rasíska orðræða sem heyrist úr ríkisstjórninni og Kristjánsborgarhöll muni ekki fá að standa ósvarað.“
Danmörk Innflytjendamál Kynþáttafordómar Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira