Innlent

Biður Jón af­sökunar

Agnar Már Másson skrifar
Grímur segir frá þessu í færslu á Facebook.
Grímur segir frá þessu í færslu á Facebook. Samsett Mynd

Grímur Grímsson, þingmaður VIðreisnar, biður kollega sinn Jón Gnarr afsökunar á „klaufalegum“ svörum sínum í útvarpsþætti í morgun þar sem hann sagði þingnefnd sem Jón færi fyrir ekki hafa fundað mikið að undanförnu. Nefndin hætti störfum í júní.

Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undanfarna mánuði og að lítið hefði gerst innan nefndarinnar.

„Það hefur verið mjög lítil vinnsla í henni undanfarna mánuði,“ sagði Grímur í Vikulokunum og svaraði aðspurður að þingnefndin hefði ekki fundað undanfarið.

Jón svaraði þessu síðar í viðtali á vef Rúv í dag og benti á að nefndin hefði aðeins átt að starfa í eitt ár, stólaskipti í barnamálaráðuneytinu hefðu einnig skapað ákveðna erfiðleika og að lítill áhugi hafi verið á þverpólitísku samstarfi á þeim tíma sem nefndin var skipuð, júní 2025, enda var langri og heitri umræðu um veiðigjöld á þingi þá nýlokið. 

Jón kallaði þetta persónuárás af hálfu Gríms.

Grímur birti í kvöld Facebook-færslu þar sem hann biður Jón afsökunar á svörum sínum og vísar í skýringar hans.

„Mér þykir leitt að hafa svarað spurningum um þessa nefnd klaufalega og bið Jón afsökunar á því.“

Ekki hefur náðst í Jón við vinnslu fréttar.

Í dag blés Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra á frásögn Jóns sem hafði sagt í Spursmálum á mbl.is að það andaði köldu milli Þorbjargar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar.

Tildrög úrsagnar Jóns úr þingflokknum eru enn ekki með öllu skýr en hann hefur meðal annars vísað til þess að málaflokkur barna með fjölþættan vanda hafi ekki fengið eins mikla athygli innan þingflokksins og hann hefði óskað. Þá hefur hann sömuleiðis sagt klíkuskap hafa ríkt innan þingflokksins.

Jón sagði í samtali við Vísi á fimmtudag, skömmu eftir að hann sagði sig úr þingflokknum, að upp hefðu komið persónuleg vandamál og áföll innan flokksins sem fólk hefði tekist misjafnlega á við.

Á sama tíma er Sigmar Guðmundsson, sem hefur verið þingflokksformaður Viðreisnar síðustu ár, í veikindaleyfi en hann hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar. Pawel Bartoszek tók við sem þingflokksformaður fyrr í vikunni.


Tengdar fréttir

Sigmar í veikindaleyfi

Varaþingmaður tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Sigmar hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar og er kominn í veikindaleyfi.

Pawel tekur við Sig­mari sem þing­flokks­for­maður

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis lýsti því yfir áður en hefðbundin dagskrá Alþingis hófst í dag að Viðreisn hefði sent þinginu bréf. Þar kom fram að Pawel Bartoszek væri orðinn þingflokksformaður Viðreisnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×