Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Lovísa Arnardóttir skrifar 17. október 2026 17:01 Björg Eva segir verða að mynda skýra stefnu. Aðsend og Vísir/Vilhelm Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar varar við stefnuleysi í uppbyggingu gagnavera. Það verði að vera skýrt hvaða gögn gagnaver á Íslandi geymi og hvort að gögn sem séu Íslendingum samfélagslega mikilvæg séu. Björg Eva segir í aðsendri grein náttúru Íslands eiga betra skilið en „stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans“.
Í grein sinni bendir Björg Eva til að byrja með á að gagnaverið At-north á Íslandi hafi nýlega birt leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagnaverum var líkt við hótel fyrir tölvur. Hótel At-North sé samkvæmt auglýsingunni frábær og framsækinn vinnustaður fyrir ólíkar starfstéttir og störfin heilmörg. „Enda í nógu að snúast við að sinna gestunum, tölvum sem þurfa að hafa það notalegt, kalt og þurrt, virkar tengingar og hæfilegt pláss. „Og gestirnir okkar borða rafmagn,“ sagði talskona At-North.“ Björg Eva segir þessa myndlíkingu góða en bendir svo á að eitt gagnaver geti étið rafmagn á við allan almenning í landinu. „Þau eru líka drykkfelld, plássfrek, valda ónæði og eru frek á náttúruna á ýmsan hátt. Nú er í bígerð að reisa nýtt gagnaver á Bakka við Húsavík, sem borðar lítil 120 mw. Það er orka sem jafnast á við uppsett afl vindorkuversins í Vaðöldu, þegar allar 28 túrbínurnar verða komnar upp,“ segir Björg Eva. Hún segir þessa umræðu sömuleiðis hafa átt sér stað í Noregi þar sem mikil uppbygging gagnavera er í bígerð. Þar óttist almenningur um náttúruna og hækkandi raforkuverð og einhverjir vilji stöðva uppbygginguna. Það sé hitamál í Noregi og kröfur um skýrari stefnu og að staðar verði numið þar til hún liggi fyrir komi úr ólíkum áttum. „Með þeim rökum að gagnaver séu orkusugur á þröngum markaði, valdi náttúruspjöllum, tæmi vatnsból, skapi fá störf og kalli á fleiri og stærri vindorkuver. Flest séu þau reiknivélar kínverskra og bandarískra tæknirisa, sem komi norsku samfélagi ekki að gagni. Nýleg skýrsla tækniráðs Noregs staðfestir afar takmarkaðan ávinning samfélagsins af rekstri gagnavera og finnsk skýrsla sýnir sömu niðurstöður,“ segir Björg Eva og að andstöðu við uppbyggingu sé líka að finna í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hún spyr hver stefnan sé á Íslandi. Það komi fram í atvinnustefnu að stjórnvöld vilji fjölga þeim en ekki hafi verið ákveðið hvaða gögn það séu og fyrir hverja. „Gervigreindargagnaverin taka endalaust til sín. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að gagnaver á Íslandi geymi samfélagslega mikilvæg gögn og í forgangi séu gögn sem íslenska þjóðin þarf á að halda, en ekki bara hvað sem er. Á Íslandi er tilviljanakennt hvaða vitneskju við höfum um gagnaverin. Upplýsingar um þessa nýstárlegu hótelgesti eru helst í formi viljayfirlýsinga og fyrirtækjakynninga sem kallaðar eru fréttir. Yfirsýn yfir bókunarstöðu tölvuhótelanna fram í tímann er ekki öllum ljós og þaðan af síður vitum við hvað gagnaverin okkar eru að geyma eða reikna. Eru það Tik Tok-myndbönd, klám, hernaðarupplýsingar eða eitthvað sem skiptir okkur máli,“ segir Björg Eva. Hún segir að á sama tíma og íslensk stjórnvöld eigi ekki að skorast undan uppbyggingunni þurfi að móta skýrari stefnu. „Við höfum víðtæka og vonda reynslu af því að byggja upp stefnulaust. Nægir að nefna sjókvíaeldið og loðdýraræktina en margt annað mætti tína til. Það hefur alltaf verið varasamt að leyfa markaðnum einum að ráða stefnunni. Í þessu tilfelli er það stórhættulegt,“ segir Björg Eva í greininni. Hún spyr að lokum hvað fólk sé tilbúið að leggja á náttúruna fyrir gagnaverin og segir náttúruna eiga betra skilið „en stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans“.
Gagnaver Gervigreind Samfélagsmiðlar Umhverfismál Loftslagsmál Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Sjá meira