Innlent

Ljós­leiðara­slit á stofn­streng Mílu milli Akra­ness og Lamb­haga

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Grundartanga.
Frá Grundartanga. Vísir/Vilhelm

Ljósleiðaraslit hefur orðið á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu. Þar segir að bilunin hafi áhrif á farsímasamband á svæðum við Svínadal, Lambhaga og Grundartanga, auk nettenginga í nágrenni við Lambhaga. 

„Búið er að staðsetja bilunina rétt austan við hringtorgið inn á Akranes. Framkvæmdasvið Mílu er farið af stað í viðgerð.

Tímasetning atviks 10:09,“ segir í tilkynningunni. 

Uppfært 13:45: Viðgerð er lokið og bæði farsíma og nettengingar eru komnar í eðlilegt horf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×