Innlent

Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð

Smári Jökull Jónsson skrifar
Inga Sæland segir að fjármagnið verði hærra en fyrst var tilkynnt um. 
Inga Sæland segir að fjármagnið verði hærra en fyrst var tilkynnt um.  Vísir/Anton Brink

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 

Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur hundruð fimmtíu og fimm milljónum í námsgagnagerð. Námsgagnaskortur hefur síðustu mánuði verið mikið gagnrýndur og sagði formaður þróunarsjóðs námsgagna í kjölfar tilkynningar ráðherra að hún óttaðist að fjármagnið myndi ekki rata rétta leið.

Að loknum ríkisstjórnarfundi í gær sagði Inga Sæland að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvernig fénu yrði varið.

„Nei, nei, það er ekki gert og það er algjörlega bara í samráði við okkur inni í menntamálaráðuneytinu og ég hef það sem ráðherra mitt að segja, það náttúrulega liggur alveg ljóst fyrir og ég vil líta til landa þar sem eru afburðanámsgögn og við höfum samanburð frá öðrum löndum og við bara tileinkum okkur þar sem okkur gengur best og er talið að það séu bestu námsgögnin.“

Sjá einnig: Ára­tuga fjár­svelti náms­gagna bitni á skóla­starfi á öllum stigum

Reyna að fá sem mest fyrir peninginn

Hún segir að reynt verði að fá sem mest fyrir peninginn.

„Það kemur mjög svo til greina að þýða erlendar bækur og það kemur líka mjög svo til greina að taka inn tækni sem við þekkjum sem heitir gervigreind og láta hana grunnvinna kannski eitthvað og annað slíkt. Og ég sé fyrir mér að við fáum jafnvel mun meira fyrir peninginn eftir en áður.“

Upphæðin hærri

Inga segir að áhersla verði lögð á svokallaðar stem-greinar, fræðigreinar á sviði verkfræði, raunvísinda, tækni, tölvunarfræði og náttúruvísinda. Upphæðin verði hærri en áður var tilkynnt, gildi fyrir næsta ár og sé inni í fjárlögum.

„Við leggjum líka áherslu á að koma með námsgögn inn í STEAM-greinarnar okkar sem er í rauninni algjörlega í samfellu við atvinnustefnu ríkisstjórnar. Við erum að leggja ríkari áherslu á STEAM-greinar þannig að þetta verða um 700 milljónir, hátt í 700 milljónir þegar upp er staðið. Þetta verða 455 milljónir í annað eins STEAM,“ sagði Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra.


Tengdar fréttir

„Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni.

Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA

Af sjö fjölmennustu sveitarfélögum landsins komu nemendur í Kópavogi og Reykjavík hvað best út úr PISA-könnuninni. Öll sveitarfélögin voru samt sem áður undir meðaltali OECD.

Spreyttu þig á PISA-spurningunum

Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×