Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Bjarki Sigurðsson skrifar 21. október 2026 06:48 Mótmælendur kveiktu eld við dómkirkjuna í Mílanó. LaPresse/AP/Stefano Porta Ítalir ætla að senda fimm hundruð hermenn til Mílanóborgar um helgina vegna mótmæla sem fyrirhuguð eru þar og Frakkar gera slíkt hið sama í París. Óeirðir hafa orðið víða í Evrópu síðustu daga og hefur utanríkisráðuneytið hvatt Íslendinga til að hafa varann á þegar ferðast er um álfuna.
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í Frakklandi, Ítalíu og Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum. Í fréttinni hér fyrir neðan má lesa nánar hvað olli því að mótmælaaldan fór af stað. Fara ránshendi um göturnar Í frönskum borgum á borð við París, Marsaille og Lyon hafa óeirðaseggir farið ránshendi um verslanir og kveikt í byggingum og bílum. Farið var fram á útgöngubann í kjölfarið og sagði innanríkisráðherra Frakklands að stjórnvöld hefðu misst stjórn á ástandinu í borgunum. Búið er að boða til mótmæla víða um Evrópu um helgina og ítölsk yfirvöld ákveðið að herinn muni aðstoða lögreglu við að koma í veg fyrir að hlutirnir fari úr böndunum. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur einnig tilkynnt að þeir sem taka þátt í óeirðum fái þyngri dóm en áður og að foreldrar barna sem taka þátt í því að ræna úr verslunum og fremja skemmdarverk verði gerðir fjárhagslega ábyrgir fyrir gjörðunum. Í Frakklandi munu hermenn standa vörð um helstu kennileiti og byggingar Parísar en komi til átaka verða þeir að kalla lögreglu til. Óeirðaseggir hafa framið skemmdarverk víða um París.EPA/Mohammed Badra Ungmenni meðal handteknu Búið er að loka útibúum fjölda tískuverslana í Mílanó af ótta við ástandið og hafa tískuhús á borð við Chanel og Dior fjarlægt allar vörur úr gluggum verslana sinna til að reyna að koma í veg fyrir þjófnað. „Ríkisstjórnin mun bregðast af festu við þessum árásum á ríkið, meðal annars með aðgerðum sem miða að því að draga úr ofbeldi af hálfu ólögráða ungmenna,“ sagði Antonio Tajani, utanríkisráðherra Ítalíu, á mánudag. 271 var handtekinn í Mílanó síðustu helgi, þar af 23 ungmenni. Lögreglumenn í átökum við mótmælendur í Mílanó.LaPresse/AP/Stefano Porta Kynni sér kröfur ríkja Utanríkisráðuneyti Íslands birti í gær færslu á samfélagsmiðlum þar sem fólk var hvatt í ljósi frétta um mótmæli og óeirðir í Evrópu til að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað. „Hafa ber hugfast að reglur og/eða leiðbeiningar staðaryfirvalda geta breyst hratt. Ferðafólk ber alltaf sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi,“ segir í færslunni.
Ítalía Frakkland Íslendingar erlendis Mótmælaalda í Evrópu 2026 Tengdar fréttir Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 19. október 2026 11:59 Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. 19. október 2026 23:36 Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum. 18. október 2026 19:43 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 19. október 2026 11:59
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. 19. október 2026 23:36
Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum. 18. október 2026 19:43