Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 20. október 2026 15:03 Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri með skóflurnar. Vísir/Anton Brink Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að fangelsið að Stóra-Hrauni fái að rísa því að á Íslandi hafi aldrei verið hannað eða byggt fangelsi sem er öryggisfangelsi. Hún segir Íslendinga eftirbáta annarra Norðurlanda.
Hún segir vanta fleiri fangelsispláss og það fáist með byggingu Stóra-Hrauns en einnig séu aðstæður í íslenskum fangelsum þannig í dag að ekki sé hægt að aðskilja erfiða fanga frá öðrum. Bygging Stóra-Hraun sé mikilvægt skref í áttina að því ná betri tökum á skipulagðri brotastarfsemi því það verði hægt að aðskilja fanga betur. Þá styðji bygging fangelsisins einnig betur við markmið þeirra um betrun fanga. Þorbjörg Sigríður segir mjög breytta stöðu innan fangelsa á Íslandi. Það sé meiri fjöldi sem sé ekki í neinum tengslum við Ísland og í einhverjum tilvikum aðeins hingað kominn til að brjóta af sér. Hún segir einnig alvarlegri afbrot og þyngri dóma og það hafi áhrif á samsetningu fanga í fangelsum á Íslandi. „Það eru hiklaust meiri áskoranir í fangelsismálum,“ segir hún og að ef íslenskum stjórnvöldum sé alvara í að ná árangri gegn skipulögðum glæpahópum þurfi að efla löggæslu, styðja við ákæruvald og dómstóla og það megi ekki gleyma fangelsiskerfinu. Þorbjörg segir að þó að þörf sé á ríki fangelsið ekki á einni nóttu. Það sé gert ráð fyrir 56 plássum þegar fyrsti áfangi sé risinn en samhliða því verði Litla-Hraun enn rekið. Þegar annar áfangi, sá síðasti, sé risinn sé gert ráð fyrir 128 fangelsisplássum sem sé fjölgun frá því sem nú er. Fyrsta skóflustungan að fangelsinu var tekin í dag. Vísir/Berghildur Þorbjörg Sigríður segir að samhliða því að fjölga plássum sé verið að skoða aðrar aðgerðir til að rýmka fyrir og koma í veg fyrir að dómar fyrnist. Til dæmis séu þau að brottvísa erlendum föngum með engin tengsl við landið um leið og afplánun er lokið. „Af því að við ætlum ekki að inngilda glæpamenn inn í íslenskt samfélag,“ segir hún og þekktasta dæmið um það sé Kourani. „Við höfum verið að stíga alls konar skref til að létta á fangelsismálakerfinu,“ segir hún en að það sé skandall að menn séu dæmdir fyrir glæpi sína í fangelsi en stígi aldrei inn í fangelsi því hér sé ekki pláss í fangelsum. Kyrrstaða síðustu tíu ár „Það hefur verið kyrrstaða í fangelsismálum,“ segir hún og að það hafi lítið sem ekkert gerst í tíu ár. Á sama tíma hafi íbúasamsetning breyst, fólksfjölgun verið gífurleg og afbrot breyst. Það sé löngu tímabært að byggja nýtt fangelsi og hún sé rosalega ánægð með það. Hún segir fyrsta áfanga fjármagnaðan í fjárlögum og fjármálaáætlun, en í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir jarðvegsvinnu og grunninum öllum. Hún segir ríkisstjórnina samhenta í því að fjármagna næstu áfanga líka og tryggja að framkvæmdinni verði tryggt. Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar segir Litla-Hraun hafa verið stóran vinnustað í sveitarfélaginu og þau hafi tekið þátt í vinnu skipulags hvað varðar Stóra-Hraun. Hann segir þetta mikilvæga uppbyggingu og það skipti máli að hafa góða vinnustaði í sveitarfélaginu og þetta hafi verið það í gegnum tíðina. Þegar fangelsið er fullbyggt verði fleiri störf og það sé jákvætt fyrir sveitarfélagið. Bragi segist ekki hafa heyrt neikvæðar sögur um það að hafa fangelsið. Samfélagið hafi breyst en uppbyggingin líka og fangelsið verði sérhanna „Þetta falli vel inn í umhverfið og samfélagið.“ Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri segir byggingu Stóra-Hrauns byltingu í sögu fangelsismála á Íslandi. Gert sé ráð fyrir að fangelsið verði risið 2031 og það megi ekki vera seinna. „Mjög brýnt og mikilvægt og stórt skref.“ Hún segir of fá pláss og að boðunarlistinn hafi lengst of mikið og refsingar hafi fyrnst. Þau reyni að koma í veg fyrir það og á meðan það sé beðið eftir því að fangelsið rísi þurfi að grípa til bráðabirgðatillagna. Það sé verið að skoða það og aðrar afplánunarleiðir og hverjir eigi heima í afplánun utan fangelsisins. Stór vinnustaður Ragna segir ekki möguleika á Litla-hrauni að aðskilja hópa og það skipti mjög miklu máli, til dæmis með tilliti til skipulagðrar brotastarfsemi, að gera það. Þess vegna hafi menn verið sendir á Hólmsheiði sem sé ekki þannig fangelsi heldur eigi það að vera móttöku- og gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún segir að gert sé ráð fyrir því að í fangelsinu verði um hundrað starfsmenn og það verði því stór vinnustaður.
Fangelsismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Árborg Tengdar fréttir Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tekur klukkan 14 í dag fyrstu skóflustunguna að öryggisfangelsinu við Stóra-Hraun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður fylgdist með athöfninni. 20. október 2026 13:31 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Rúmlega nífalt fleiri tilfelli komu upp um fíkniefnanotkun fanga á Litla-Hrauni en á Hólmsheiði á fimm ára tímabili. Erfiðara sé að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla Hrauni samkvæmt svari dómsmálaráðherra. 7. september 2026 07:08 Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Brottvísunarferli tíu fanga, sem afplánað hafa minnst þriðjung refsingar sinnar, hefst um leið og ný lög dómsmálaráðherra um brottvísanir fanga taka gildi. Mohamad Kourani er ekki einn þeirra en unnt verður að hefja brottvísunarferli hans eftir um þrjá mánuði. 3. júní 2026 12:49 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Sjá meira
Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tekur klukkan 14 í dag fyrstu skóflustunguna að öryggisfangelsinu við Stóra-Hraun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður fylgdist með athöfninni. 20. október 2026 13:31
Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Rúmlega nífalt fleiri tilfelli komu upp um fíkniefnanotkun fanga á Litla-Hrauni en á Hólmsheiði á fimm ára tímabili. Erfiðara sé að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla Hrauni samkvæmt svari dómsmálaráðherra. 7. september 2026 07:08
Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Brottvísunarferli tíu fanga, sem afplánað hafa minnst þriðjung refsingar sinnar, hefst um leið og ný lög dómsmálaráðherra um brottvísanir fanga taka gildi. Mohamad Kourani er ekki einn þeirra en unnt verður að hefja brottvísunarferli hans eftir um þrjá mánuði. 3. júní 2026 12:49