Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sprengisandur verður helgaður komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Talið verður upp úr kjörkössunum eftir viku og þá komumst við að því hvort þjóðin segi nei eða já. Innlent 23.8.2026 08:00
Límmiðar lifðu ekki af nóttina „Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun. Innlent 22.8.2026 16:04
Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn. Innlent 22.8.2026 13:43
Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent 20.8.2026 22:01
Um peningalegt fullveldi og framsal þess Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið. Umræðan 20. ágúst 2026 07:50
Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. Innlent 20. ágúst 2026 07:29
„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum. Innlent 19. ágúst 2026 12:30
Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stóð fyrir pallborðsumræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í dag. Innlent 19. ágúst 2026 11:30
Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. Innlent 19. ágúst 2026 01:01
Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með. Innlent 18. ágúst 2026 23:30
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18. ágúst 2026 21:03
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt. Innlent 18. ágúst 2026 19:56
Ráðuneytið birtir útreikningana Stjórnarráð Íslands hefur gefið út mat á kostnaði við aðild að Evrópusambandinu en þar kemur fram að hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins orðið um átta til þrettán milljarðar. Áður hefur verið greint frá því að Áfram Ísland standi við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Forsætisráðherra hefur fullyrt að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“ Innlent 18. ágúst 2026 17:38
Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Ákveði Íslendingar að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið gæti það greitt götu Svartfjallalands inn í Evrópusambandið, að því er fram kemur í frétt Reuters. Þar er haft eftir háttsettum erindreka innan ESB að viðræður við auðugt ríki á borð við Ísland geti dregið úr efasemdum um frekari stækkun sambandsins. Erlent 18. ágúst 2026 16:29
Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Áfram Ísland stendur við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Samtökin vísa á bug fullyrðingum forsætisráðherra um að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“ Innlent 18. ágúst 2026 14:45
Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun. Markaðurinn fylgist að venju grannt með en að þessu sinni hafa aðilar vinnumarkaðarins og fylkingarnar í ESB-málinu einnig sérstaka ástæðu til að leggja við hlustir. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 14:28
Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. Innlent 18. ágúst 2026 12:18
Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Breskur hagfræðiprófessor sem sat í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eftir hrun segir Ísland eiga heima í evrusvæðinu. Upptaka evru geti aukið stöðugleika og gerði það afar ólíklegt að hrun eins og það sem varð árið 2008 endurtæki sig. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 11:33
Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar. Innlent 18. ágúst 2026 10:59
Allt gert til að stöðva birtinguna Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar. Innlent 17. ágúst 2026 17:48
Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug. Lífið 17. ágúst 2026 15:00
Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi. Innlent 17. ágúst 2026 13:36
Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Erfitt er fyrir kjósendur að átta sig á því hvað þeir eru að greiða atkvæði um þann 29. ágúst næstkomandi vegna upplýsingamengunar frá báðum fylkingum segir stjórnmálafræðingur. Þær tileinki sér báðar ákveðna anga popúlisma. Innlent 17. ágúst 2026 12:02
Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. Innlent 17. ágúst 2026 10:39
Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni. Innlent 16. ágúst 2026 22:33