Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Árni Sæberg skrifar 29. september 2026 18:01 Heiða Kristín aðstoðaði Þorgerði Katrínu frá mars út ágúst. Vísir Utanríkisráðuneytið greiddi félagi Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar alls fjórtán milljónir króna vegna sérlegrar ráðgjafar hennar við utanríkisráðherra í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún starfaði fyrir ráðuneytið í sex mánuði.
Líkt og Vísir greindi frá í mars síðastliðnum var Heiða Kristín, sem hefur meðal annars verið varaþingmaður og aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem haldin var þann 29. ágúst síðastliðinn. Mánuðina áður hafði Þorgerður Katrín aðeins notið aðstoðar eins aðstoðarmann en ekki tveggja, líkt og flestir ráðherrar, eftir að Aðalsteinn Leifsson sagði starfi sínu sem slíkur lausu til að taka þátt í prófkjöri Viðreisnar fyrir borgarstjórnarkosningar. „Ég er að taka að mér sérstaka ráðgjöf varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, þannig að ég er að fylla að hálfu leyti í það hlutverk en ekki að öllu leyti,“ sagði Heiða Kristín í samtali við Vísi á sínum tíma. Greiddu Nebraska ehf. Á meðan Heiða Kristín gegndi ráðgjafarstörfum fyrir Þorgerði Katrínu hóf utanríkisráðuneytið að greiða reikninga frá félaginu Nebraska ehf., sem er í jafnri eigu Heiðu Kristínar og Guðmundar Kristjáns Jónssonar, eiginmanns hennar og fyrrverandi aðstoðarmanns Þorgerðar Katrínar þegar hún var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra árið 2017. Vísir sendi utanríkisráðuneytinu fyrirspurn vegna greiðslanna skömmu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu og nú liggur svar fyrir. „Utanríkisráðuneytið gerði tímabundinn samning við fyrirtæki Heiðu Kristínar Helgadóttur, Nebraska ehf., í mars 2026 um stefnumótandi ráðgjöf og verkefni fyrir utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðargreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Vegna þessa hafa borist átta reikningar, sá síðasti nú í september, samtals að fjárhæð 14.000.000 króna,“ segir í svarinu. Réð ekki annan aðstoðarmann á meðan Þá segir að utanríkisráðherra hafi ákveðið að fá tímabundið til liðs við sig einstakling til að sinna sértækum verkefnum og ráða sér ekki nýjan aðstoðarmann í millitíðinni, meðal annars til að forðast kostnaðarauka sem í því hefði falist. Tveimur dögum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna var greint frá því að Rún Ingvarsdóttir hefði verið ráðin aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar. Í fréttatilkynningu þess efnis sagði að undanfarin ár hefði Rún gegnt starfi samskiptastjóra hjá Veitum, dótturfélagi Orkuveitunnar. Þangað hefði hún komið frá Landsbankanum þar sem hún hefði starfað í sjö ár sem sérfræðingur í samskiptamálum. Á árunum 2007 til 2015 hefði hún verið fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins í erlendum fréttum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Utanríkismál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Sjá meira