Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Sunna Sæmundsdóttir skrifar 25. september 2026 11:54 Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður. Vísir/Ívar Fannar Guðmundur Ingi Kristinsson segir Ingu Sæland hafa vitnað í ráðherrasamtal sem um gildi trúnaður í ræðustól Alþingis í gær. Honum segist létt eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu. Sannleikurinn sé staðreynd en ekki upplifun.
Rætt var um aðdraganda afsagnar Guðmundar Inga Kristinssonar úr embætti barna- og menntamálaráðherra á Alþingi í gær og sást Guðmundur hrista hausinn þegar Inga Sæland svaraði fyrirspurn um málið. „Hún var komin inn á þarna trúnaðarsamtal sem mér fannst ekki viðeigandi og þess vegna hristi ég hausinn,“ segir Guðmundur. Þar vísar Guðmundur Ingi í yfirferð Ingu þar sem fundi þeirra tveggja auk Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra á heimili hans var lýst. „Ég og hæstvirtur forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, heimsóttum Guðmund Inga Kristinsson, þar sem við sátum með honum vel á annan tíma eftir að hann var nýkominn út af sjúkrahúsinu. Þar sem í rauninni, við vorum að ræða um menntamálaráðuneytið, um stöðuna og um hans veikindi. Við kveðjumst með það að leiðarljósi að Guðmundur Ingi áskildi sér það, að hann myndi gefa sér stundarkorn til að taka ákvörðun um það sem hann ætlaði að gera í framhaldinu,“ sagði Inga Sæland á Alþingi í gær. Sannleikurinn sé staðreynd en ekki upplifun „Þetta var ráðherrafundur sem um gildir trúnaður,“ segir Guðmundur Ingi um yfirferð Ingu Sæland, sem hefur ekki þegið boð fréttastofu um viðtal. Hann segist almennt hafa fengið góðan stuðning eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu sinni þar sem valkostum forrystukvenna ríkisstjórnarinnar varðandi embættið var lýst þannig að veikindaleyfi eða stríð stæði til boða „Ég vildi ekkert birta þetta, ég gerði það bara af því ég neyddist til þess. Og nú er þessu bara lokið að minni hálfu.“ Hvað finnst þér um viðbrögð Ingu Sæland? „Þetta er bara eins og ég bjóst við og hún verður bara að taka þetta á þann hátt eins og hún greinilega ætlar að gera. Ég vildi koma sannleikanum á framfæri, ekki þannig að sannleikurinn sé einhver upplifun, hann er bara staðreynd,“ segir Guðmundur Ingi.
Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira