Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. september 2026 19:37 Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og bætir við sig fylgi um rúmt prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi um tæp tvö prósentustig og Flokkur fólksins mælist enn utan þings.
Ríkisútvarpið greinir frá en Þjóðarpúlsinn var gerður dagana 1.-28. september og er því fyrsta könnunin sem Gallup gerir eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst síðastliðinn. Bæta við sig eða missa þingmenn Samfylkingin mælist nú með 30,8 prósenta fylgi sem dygði til að fá 23 menn inn á þing. Í síðasta Þjóðarpúlsi Gallups mældist Samfylkingin með 29,6 prósenta fylgi og bætir því einum þingmanni við sig. Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur en minnkar fylgi sitt um tæp tvö prósentustig og mælist með 24,7 prósenta fylgi sem samsvarar átján þingmönnum. Þar á eftir kemur Miðflokkurinn en hann mælist með slétt fimmtán prósent og fengi því ellefu þingmenn ef gengið væri til kosninga í dag líkt og í síðasta Þjóðarpúlsi. Viðreisn mælist með 10,6 prósent og sjö þingmenn og Framsókn með rétt tæp sex prósent og fjóra þingmenn. Viðreisn bætir við sig tæpu prósentustigi en engin breyting yrði á þingmannafjölda frá því í síðasta Þjóðarpúlsi ef gengið yrði til kosninga í dag. Flokkur fólksins fengi engan mann inn á þing ef gengið yrði til kosninga og mælist með fjögurra prósenta fylgi. Flokkurinn tapar því tæpu prósentustigi frá síðasta Þjóðarpúlsi. Næðu engum inn á þing Í niðurstöðum könnunar Maskínu sem birtar voru í síðustu viku mældist Samfylkingin með ríflega 27 prósenta fylgi og munar því rúmum þremur prósentustigum milli kannana. Samkvæmt þeirri könnun fengi Viðreisn rétt tæp tólf prósent, Miðflokkurinn þrettán og Flokkur fólksins 4,3. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír mælast með rúmlega 45 prósenta fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup og bætir ríkisstjórnin því við sig lítillega eða um eitt prósentustig. Það dygði þó ekki til að halda stjórn ef gengið væri til kosninga í dag en flokkarnir fengju samanlagt 30 þingmenn, en 32 þingmenn þarf til að mynda meirihluta. Vinstri græn mælast með 3,7 prósent, Píratar 2,7 og Sósíalistar 2,4. Enginn þeirra næði því manni inn á þing.
Alþingi Skoðanakannanir Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Vinstri græn Píratar Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira