Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. október 2026 14:49 Daði Már vill efla traust til Alþingis. vísir/viktor freyr Fjármálaráðherra segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum en passa upp á minnihlutaverndina.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að á Íslandi tali þingmenn meira en sést á öðrum þingum og lýsir því sem ákveðnu samhæfingarvandamáli enda fari magn og gæði oft ekki endilega saman. Gera þurfi breytingar til að auka traust og virðingu til þingsins. „Ég held að það sem við þurfum að gera er að setjast niður og skoða hvernig önnur þing leysa sambærileg vandamál. Það þarf að huga að minnihlutavernd á þinginu og í dag er minnihlutaverndin falin í rétti þeirra til að tala eins mikið og þeir vilja.“ Það að þingmenn tali minna og geri meira myndi að sögn Daða auka virðingu þingsins til lengri tíma. „Það er hins vegar erfitt að taka þessar ákvarðanir. Stjórnarandstaðan kann auðvitað að meta þau réttindi sem hún hefur. Stjórnin, hver sem hún er á hverjum tíma, vill alltaf draga úr þeim. Eiginlega einu tímarnir þar sem hefur verið mögulegt að gera breytingar á þingsköpum á Íslandi er árið fyrir þingkosningar af því þá veit enginn hver verður í minnihluta og hver verður í meirihluta og þá geta menn sest niður og reynt að meta þetta svona með einhvern veginn hlutlausum hætti.“ „En þarna þurfum við að gera breytingar. Það er mjög óheppilegt að ímynd þingsins í samfélaginu sé að það sé mikið gasprað og lítið gert vegna þess að það er ósanngjarnt gagnvart þinginu. Þingið er grundvallarstofnun í íslensku samfélagi og það eru hagsmunir okkar allra að virðing þingsins sé mikil.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira