Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Birgir Olgeirsson skrifar 28. september 2026 15:03 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði við RÚV í september að á lokametrunum hefði komið í ljós að ekki væri samstaða innan fiskeldisgreinarinnar um að styðja frumvarpið. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026.
Vísir spurði atvinnuvegaráðuneytið hvort til stæði að leggja frumvarpið aftur fram. „Líkt og sjá má á þingmálaskrá er frumvarp um lagareldi ekki á dagskrá á yfirstandandi löggjafarþingi vegna forgangsröðunar annarra þingmála,“ segir í svari ráðuneytisins. Ráðuneytið var þá spurt hvort það þýddi að ekki væri til skoðunar eða stæði til að leggja frumvarpið fram. „Ákvörðun hefur ekki verið tekin um málið og liggur því ekki fyrir á þessari stundu,“ segir í svarinu. Náðu ekki saman um málið Lagareldisfrumvarpið var lagt fram 16. mars og fór til atvinnuveganefndar eftir fyrstu umræðu viku síðar. Nefndin afgreiddi málið í júní og meiri hlutinn skilaði nefndaráliti og breytingartillögu. Frumvarpið var hins vegar ekki tekið til annarrar umræðu áður en þingstörfum lauk. Þegar ljóst var að málið yrði ekki afgreitt sagði Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, í frétt Vísis að ekki hefði tekist að „ná saman um það hérna í þinginu“. Hann útskýrði ekki nánar í hverju ágreiningurinn fólst. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði síðar í viðtali við RÚV að á lokametrunum hefði komið í ljós að ekki væri samstaða innan fiskeldisgreinarinnar um að styðja málið. Stefnt að lagasetningu vorið 2026 Í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar segir að mikil vaxtartækifæri felist í laxeldi, bæði í sjó og á landi. Í aðgerðaáætlun stefnunnar var gert ráð fyrir að regluverk og gjaldtaka í sjókvíaeldi yrðu endurskoðuð. Einnig átti að setja sérstaka umgjörð um landeldi. Tímarammi beggja aðgerða var vorið 2026 og lagasetning tilgreind sem niðurstaðan. Nú, hálfu ári síðar, liggur hvorki fyrir ákvörðun um endurflutning lagareldisfrumvarpsins né hvenær boðuð lagasetning um greinina gæti orðið að veruleika.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjókvíaeldi Sjávarútvegur Alþingi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira