Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er efst í sínum riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar, eftir fjóra leiki af sex. Jafnteflin gegn Eistlandi gætu hins vegar reynst dýrkeypt í baráttunni um sæti á EM 2028 og taldar eru minna en þriðjungslíkur á að Ísland verði með á mótinu sem fram fer í Englandi, Wales, Skotlandi og Írlandi. Fótbolti 7.10.2026 15:01
Upp um eitt sæti á heimslistanum Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um eitt sæti eftir tvo sigra og tvö jafntefli í nýliðnum landsliðsglugga. Allir andstæðingar liðsins eru neðar á listanum. Fótbolti 7.10.2026 13:31
Rekinn frá Tyrkjum Vincenzo Montella hefur verið sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari Tyrklands eftir rúm þrjú ár í starfi. Tyrkjum gekk ekki vel í nýliðnum landsliðsglugga. Fótbolti 7.10.2026 12:45
Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Það var risastór stund í knattspyrnusögunni í nótt þegar sjálfur Lionel Messi lék kveðjuleik sinn fyrir Argentínu og að sjálfsögðu skoraði hann, í 3-0 sigri gegn Benín í vináttulandsleik. Fótbolti 7.10.2026 07:05
Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, tilkynnti á samfélagsmiðlinum Instagram að hann muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn 6.10.2026 22:59
Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Það er stórt augnablik að fá að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna sína og voru tveir leikmenn í íslenska kvennalandsliðinu að upplifa það í dag. Hópurinn er staddur í Króatíu þar sem liðið mætir heimakonum á föstudaginn í undankeppni heimsmeistaramótsins sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári. Íslenski boltinn 6.10.2026 22:30
Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Mér fannst þetta frábært stig á erfiðum útivelli,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson eftir markalaust jafntefli Íslands gegn Eistlandi í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 21:26
„Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ Ísak Bergmann Jóhannesson leyfði sér að vera svekktur eftir markalaust jafntefli íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Eistum í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 21:05
„Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ Gylfi Þór Sigurðsson hefur lagt mikið á sig til að leika með íslenska landsliðinu í yfirstandandi landsleikjaglugga. Hann fær verðskuldaða hvíld næstu rúmu vikuna til að jafna sig á rifbeinsbroti. Fótbolti 6.10.2026 21:04
„Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Það var þungt hljóðið í sérfræðingum Sýnar Sports eftir markalausa jafnteflið gegn Eistum í kvöld. Menn voru ekki hrifnir af frammistöðu íslenska liðsins. Fótbolti 6.10.2026 20:54
„Það sem svíður mest“ „Akkúrat núna er ég svekktur. Við eigum að gera betur. Við erum betra lið en við sýndum í dag. Við þurufm að horfa á þetta aftur og gera betur. Þetta er ekki nóg,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir markalaust jafntefli Íslands við Eistland ytra í Þjóðadeildinni í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 20:49
Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði markalaust jafntefli er liðið heimsótti Eistland í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinn í kvöld. Stigið tryggir að íslensku strákarnir tróna á toppi riðilsins fram í næsta landsleikjahlé. Fótbolti 6.10.2026 17:30
Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Margur hefur spilað betur í íslenska karlalandsliðinu en þeir gerðu í Tallinn í Eistlandi í kvöld. Leik liðanna lauk með markalausu jafntefli í tíðindalitlum leik. Fótbolti 6.10.2026 20:34
Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Cristiano Ronaldo birti langan pistil í kvöld þar sem hann sagði sína hlið á því hvers vegna hann fór frá portúgalska landsliðinu í miðjum landsleikjaglugga. Hann biðst afsökunar á því að hafa farið frá landsliðinu en vonast til að fá að snúa aftur í landsliðið. Fótbolti 6.10.2026 19:25
Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil U21 landslið Frakklands vann stórsigur á U21 landsliði Sviss í leik sem endaði 7-1. Með sigri Frakklands tryggir íslenska liðið sér í umspil til þess að komast á EM og endar liðið í öðru sæti riðilsins. Fótbolti 6.10.2026 19:01
Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Króatía tók á móti Spáni í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar. Króatía komst óvænt yfir í byrjun en Mikel Merino náði að skora tvö mörk og tryggja sigur fyrir Spán. Fótbolti 6.10.2026 18:15
Kane með tvennu í öruggum sigri Englendingar fljúga hátt þessa dagana og unnu sannfærandi 3-0 sigur á Tékkum í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 18:15
Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Gylfi Þór Sigurðsson kemur aftur inn í byrjunarlið Íslands þrátt fyrir rifbeinsmeiðsli og er einn fimm sem koma inn í liðið frá 3-0 sigri á Búlgaríu á laugardaginn var. Fótbolti 6.10.2026 17:31
Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Íslenska U21 árs landslið karla tryggði sér sæti í umspili um sæti á Evrópumótinu eftir sannfærandi 0-2 sigur á Færeyjum ytra í lokaumferð undankeppninnar í kvöld. Íslenska liðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda og treysta um leið á að Sviss myndi ekki vinna Frakkland. Strákarnir kláruðu sitt verkefni af miklu öryggi og Frakkar réttu risastóra hjálparhönd þegar þeir völtuðu yfir Svisslendinga. Umspilssæti Íslendinga er því staðreynd. Fótbolti 6.10.2026 16:16
Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Ísland heimsækir Eistland á A Le Coq leikvanginum í Tallinn í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld. Um mikilvægan leik fyrir bæði lið er að ræða og Vísir hitaði upp á Íslandstorginu í Tallinn í dag. Fótbolti 6.10.2026 13:59
Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Leikur Eistlands og Íslands í Þjóðadeild UEFA mun klárast rétt fyrir miðnætti hér í Tallinn. Landsliðsþjálfari Íslands segir að um skrýtnasta leiktímann sé að ræða. Reynslumiklir landsliðsmenn Íslands muni hins vegar ekki eiga í erfiðleikum með þetta. Fótbolti 6.10.2026 12:17
Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Besta sætið er með fókusinn í Tallin í dag enda fer landsleikur Eistlands og Íslands fram þar í kvöld. Fótbolti 6.10.2026 12:01
Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Eistland og Ísland mætast í mikilvægum leik í Þjóðadeild Evrópu í Tallinn í kvöld. Saga þjóðanna tveggja á sér rík tengsl og út frá stöðu alþjóðamála í dag er hægt að líta aftur í tímann og sjá hvaða áhrif smáríki gat haft í hinu stóra samhengi. Tvær þjóðir sem meta fullveldi og sjálfstæði mikils, ógnin úr austri vofir yfir Eistum. Fótbolti 6.10.2026 11:32
Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Katrín Ásbjörnsdóttir segir reginmun hafa verið á Víkingi og Val, liðunum sem féllu, og liðum Fram og Þórs/KA sem héldu sér uppi í Bestu deild kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 6.10.2026 10:58