Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. október 2026 12:38 Frá Bessastöðum. Íslensku menntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk séstakra hvatningarverðlauna.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að þrír séu tilnefndir fyrir framúrskarandi skólastarf. Leikskólinn Gefnarborg í Garði í Suðurnesjabæ fyrir fjölbreytt og og markvisst þróunarstarf. Í skólanum hafa verið þróaðir starfshættir sem eru kenndir við læsistengda skynjun þar sem læsi, skynjun, leikur, sköpun og útinám fléttast saman með markvissum hætti. Grundaskóli á Akranesi fyrir fjölbreytt og gróskumikið og margháttað þróunarstarf sem hefur m.a. beinst að því að koma sem best til móts við ólíkar þarfir nemenda. Grundaskóli er m.a. kunnur fyrir sveigjanlega kennsluhætti, fjölbreytt þemaverkefni og öfluga kennslu í list- og verkgreinum. Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs - en þessi námsbraut er einkum ætluð nemendum sem hafa verið í námsverum eða sérskólum eða fengið verulegan stuðning í almennum bekk vegna fötlunar eða sérstakra námsörðugleika. Fjórir kennarar tilnefndir Fjórir kennarar eru tilnefndir fyrir framúrskarandi kennslu Halldór Baldursson, kennari við Myndlistaskólann í Reykjavík, fyrir framúrskarandi myndlistarkennslu, Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, sérkennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá Múlaþingi, fyrir einstakt framlag til menntunar, velferðar og farsældar barna og ungmenna, Ragna Gunnarsdóttir, kennari í Flataskóla í Garðabæ, fyrir framúrskarandi kennslu á yngsta- og miðstigi og Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu. Þrjú verkefni eru tilnefnd í flokki þróunarverkefna Samkennd og sjálfræði – þróunarverkefni í Verzlunarskóla Íslands er verkefni sem byggist á því að nemendur á fyrsta ári vinna í teymum að verkefnum sem beinast að því að láta gott af sér leiða í samfélaginu með sjálfboðavinnu. Stilla – hæglátt leikskólastarf er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, Aðalþingi í Kópavogi, Iðavöllum á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi, um að gefa börnunum tækifæri til að sökkva sér í leik og gefa þeim meiri tíma til að kanna hugmyndir sínar. Söngvavor: Samstarf um tónlistaruppeldi, málrækt og jöfn tækifæri barna. Söngvavor er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla. Leikskólabörnin læra sönglög eftir íslensk tónskáld, heimsækja tónlistarskóla og æfa með hljómsveitum þeirra. Verkefninu lýkur með mikilli tónlistarhátíð þar sem börnin koma fram fyrir áheyrendur. Í flokki iðn- og verkmennta eru þrjár tilnefningar Menntaskólinn á Ísafirði er tilnefndur fyrir Tímatökuhúsið – verkefni sem sýnir hvernig iðnmenntun getur tengst samfélaginu á uppbyggilegan hátt – en þetta verkefni fólst í hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir skíðafélagið sem síðar var flutt upp á skíðasvæðið í Tungudal til notkunar við tímatöku í alpagreinum. Höfundar námsefnisins Matreiðsla eru tilnefndir fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar með því að semja heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi – en þetta eru rafbækur sem hafa reynst afar vel í kennslu. Höfundar eru matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson. Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefnfur fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt – en í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast. Hvatningarverðlaun verða veitt við athöfnina á Bessastöðum án tilnefninga og koma oft í hlut frumkvöðla eða brautryðjenda!
Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira