Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Smári Jökull Jónsson skrifar 5. október 2026 14:39 Um tvöhundruð máltíðir voru sendar í ráðhús Reykjavíkur þá daga sem smitið kom upp. Vísir/Vilhelm Um fjörutíu manns veiktust í hópsmiti sem kom upp í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni í síðustu viku. Nóróveira hefur greinst í tveimur sýnum en ekki hefur tekist að tengja smitið við tiltekin matvæli.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sendi frá sér um málið. Þar segir að það sé mat heilbrigðiseftirlitsins að hópsmit sé yfirstaðið en unnið hefur verið að rannsókn málsins í samvinnu við sóttvarnalækni, Matvælastofnun og umdæmislækni sóttvarna á höfuðborgarsvæðinu. Veikindin komu fram dagana 24.–28. september og voru helstu einkenni þeirra sem veiktust uppköst, niðurgangur og hiti. Í yfirlýsingunni segir að um fjörutíu manns hafi veikst en nóróveira hafi greinst í tveimur sýnum. Einnig kemur fram að grunur hafi beinst að mötuneytinu í Borgartúni þar sem þeir sem veiktust hafi borðað þar á umræddu tímabili. Var farið í eftirlit í mötuneytinu en ekkert kom fram sem skýrt getur hópsmitið. Tekin voru viðtöl við þá sem veiktust og meðal annars aflað upplýsinga um neyslu þeirra í mötuneytinu dagana áður en einkenni komu fram. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Þá hafi athugun á tengslum milli neyslu einstakra matvæla og veikindanna ekki sýnt fram á tengsl við tiltekin matvæli sem boðið var upp á þessa daga. Telja hópsmit yfirstaðið Alls borðuðu um 1100 manns í mötuneytinu 23.–25. september en þar starfa tæplega átta hundruð manns. Auk þess voru tæplega tvö hundruð máltíðir sendar í Ráðhúsið. Í yfirlýsingunni segir að Reykjavíkurborg, sem sé starfsleyfishafi mötuneytisins og ábyrgðaraðili þess, hafi brugðist við athugasemdum Heilbrigðiseftirlitsins og þá hafi þrif verið aukin og bætt. Þar sem engar upplýsingar hafa borist um ný veikindatilfelli sem tengjast málinu er það mat Heilbrigðiseftirlitsins að hópsmitið sé yfirstaðið og að starfsfólk sem sé frískt og án einkenna geti mætt til vinnu.
Reykjavík Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira